Ömurleg staða vægast sagt

Hvað er bara ekkert að frétta? Skil ekki af hverju allt er ekki orðið brjálað hér í Eyjum útaf þessu og bæjarstjórinn búinn að rífa af sér allt hár, rétt eins og þeir sem þurfa að stóla á þetta skip vegna fyrirtækja sinna. Það er ég hræddur um að þetta sé nú mikilvægara mál til að ræða um en einhver ESB tillaga vonlausa utanríkisráðherrans. Hér á fólk að vera orðið alveg brjálað, hér og nú, ekki seinna en áðan. Flott að vera búsettur í bæjarfélagi þar sem menn segjast stöðugt vera á uppleið en samgöngurnar nánast eins og þær voru í kringum 1970 - snilldin ein - alveg hreint hamingjan í öðru veldi svei mér þá.

Þetta er náttúruelga ekki hægt það gengur heldur ekki að hækka laun þessara áhfanarmeðlima um nokkra þúsundkalla á mánuði á meðan forstjóri batterísins er með tugi milljóna í árslaun og gerir sennilega færri hugsana- og handtök á ári en latasti hásetinn um borð - það er nú alveg í lagi að kippa þessu í liðinn, ekki seinna en í gær takk fyrir.

Leysa þetta mál takk, núna væri t.d. fínt


mbl.is Vond staða fyrir Eyjamenn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Snilldin ein

Það verð ég að segja að þetta lítur nú ekki gæfulega út. Þjóðvegurinn bara opinn á dagvinnutíma. Er ekki allt í lagi?  Þetta er nú mál sem verður að leysa 1, 2 og 3. Þetta er ekki fólki bjóðandi.
mbl.is Siglir einungis eina ferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verum ekki bikarmeistarar í ár

Mávarnir úr leik - draumurinn úti. Þá er bara að reyna að ná sæti í umspilinu - koma svo piltar
mbl.is Hull og Charlton í átta liða úrslitin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

hvernig í ósköpunum....

.....getur það gerst hjá þjóð sem þykist vera þjóð á meðal þjóða að svona maður verði fyrir valinu sem einn af æðstu embættismönnum landsins. - ég er alveg miður mín útaf þessu.
mbl.is Fullkomlega óábyrgt að halda áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta verður eitthvað

...þetta er orðið spurning um að færa lögheimilið í höfuðborgina - svei mér þá
mbl.is Hugmynd sem neitar að deyja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stunda yfirvöld einelti?

Getum við sagt að ríkið sé að leggja Regnbogabörn, já og sennilega önnur svona samtök, í einelti? Þessi samtök aldeilis að vinna í máefni sem er þjóðinni á margan hátt hugleikið og hefur leikið margan ansi grátt.     ....kannski kviknar á perunni?
mbl.is Ekki að gefast upp á málefninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru menn ekki að grínast

Menn hljóta að vera að grinast með þessa niðurstöðu, ég trúi ekki öðru. Það verð ég að segja að Kópavogsbúar hafa betri húmor en ég bjóst við.
mbl.is Þakklátur fyrir traustið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Algjörlega magnað...

...hvað virðist vera erfitt að komast að uppruna sumra leka - en þessi er nú einn sá alskæðasti hin síðari ár svo ekki sé meira sagt.

Finnst alveg magnað hvað þetta mál hefur undið upp á sig svo ekki sé meira sagt - og sér ekki fyrir endan á þessu enn.

Ætli hausar muni rúlla? 


mbl.is Vill frekari athugun á lekamálinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kjaftæði

Eyjamenn voru miklu betri - klassa, ef ekki klössum ofar. Spennustigið var hátt en mínir menn höndluðu það betur og rúlluðu þessu upp. Nú er mikilvægast fyrir þá að halda haus út deildarkeppnina og landa sæti sem enginn reiknaði með að þeir myndu ná.
mbl.is ÍBV skömminni skárri
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gargandi gleði - frábær sigur

Sérdeilis flottur sigur þetta hjá ÍBV. Framarar tapa þarna sínum fyrsta leik á heimavelli í vetur. Geri aðrir betur!!! Tær snilld. Mínir menn bara á flugi og lítð meira um það að segja. Nú er bara að halda þetta út það sem eftir er af tímabilinu og ná að halda öðru sætinu það yrði nú aldeilis frábært. Menn klárlega að gera góða hluti. Gengið í vetur farið fram úr björtustu vonum.

Áfram ÍBV  .....like always 


mbl.is Eyjamenn upp í annað sætið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sochi eða Sotsjí

veit ekki minnir mig á Vestmannaeyjar og Westman Islands - Höldum leikana frekar í Sochi
mbl.is Nýtt „huldulyf“ notað af keppendum í Sotsjí?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta lýst mér vel á

Það verð ég að segja að þetta kemur mér pínu á óvart en mér lýst vel á þetta. Þetta er spennandi og gæti orðið bráðskemmtilegt fyrir okkur sem höfum gaman af svona ævintýrum sem ekki eru kannski alveg eftir bókinni.  Vinsældir þessa magnaða leiks virðist engan endi ætla að taka. Fylgjendunum fjölgar og leikurinn eflist. Menn þurfa að vera á tánum til að viðhalda einhverju sem þessu og það virðist þeim CCP mönnum hafa tekist og ég er þess fullviss að komi menn saman sjónvarpsþáttaröð þá verður líf og fjör í leiknum og hann bara verða stærri og stærri. Hef nenfilega enga trú á að svona þáttur hjá þessum snillingum yrði eitthvert flopp. - Ætla að leyfa mér að hlakka til að sjá þessa þáttaröð, sjáum svo til hvort þáttaraðirnar verða fleiri en ein Wink
mbl.is Viljum gera vel, frekar en hratt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Beckham er maðurinn

Þetta er spennandi verkefni sem Beckham hefur þarna tekið að sér. Hrikalega held ég að það gæti verið gaman að vera þátttakandi í þessu verkefni. Þetta er eiginlega svona draumaverkefni þ.e.a.s. að fá að koma að þessu alveg frá upphafi. Taka þátt í mótun og sköpun þess mikla verkefnis sem rekstur svona félags er. Ef einhver þarna úti sem les þetta þekkir Beckham þá má hann benda honum að hafa samband við mig í gegnum netfangið gillihjartar@gmail.com hann yrði aldeilis ekki svikinn af því að fá mig í teymið.

Frábært að sjá hvað Beckham hefur komið sér vel á framfæri víða og er á svo margan hátt frábær fyrirmynd. 


mbl.is Beckham stefnir á heimsklassalið í Miami
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband