Er Steingrímur einangrunarsinni?

Steingrímur er einn af fáum þingmönnum sem að ég ehf heyrt minnast á að kominn sé tími á að loka á verðtrygginguna. en ekkert gerist í því frekar en svo mörgu öðru. Menn vilja greinilega halda a´fram í sama leiknum. Þjáka þjóðin af vöxtum og vaxtavöxtum og þar fram eftir götunum.

Á ég að trúa því að ef sýnt verður fram á möguleika á betri lífskjörum fyrir almenning innan ESB að þá muni VG og Steingrímur leggjast gegn því? Trui því ekki upp á Steingrím, eða eru þeir að verða svona einangrunar og eiginhagsmunaflokkur alveg eins og ýmsir aðrir?  Eiga menn hér áfram að búa við háa vexti, það sem kallað er okurvextir í öðrumlöndum,  og verðtryggingu sem étur upp peningana hjá manni a meðan fólk annarsstaðar býr við lága vexti, betra vöruverð og fleira? Eigum við þá að hjakka í farinu?

Vill Steingrímur að í framtíðinni haldi menn áfram að t.d. taka húsnæðislán (bara venjulegt gamaldags verðtryggt húsnæðislán) og menn byrja á að borga 37 þús á mánuði en eftir 12 ár eru menn að borga 72 þús á mánuði - er það þetta sem hann vill? Vilja menn að í stað þess að borga í heildina af 20 milljóna króna láni borgi menn kannski 25 milljónir að þá í staðinn borga menn nálægt 175 milljónir með því að búa á Íslandi!!! Eru það svona mikil forréttindi að búa á Íslandi?

 


mbl.is Afstaða VG til ESB óbreytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sleggjan og Hvellurinn

Það eru sumir það harðir í andstöðu sinni að þeim er alveg sama um rök og annað. Þeir segja alltaf NEI.

Ef verðtryggingin verður afnumin með lögum þá kemur ekkert betra í staðinn. Þá koma bara breytilegir vextir sem hækka í takt við verðbólguna.

Sleggjan og Hvellurinn, 24.7.2010 kl. 18:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband