Koma svo Ragnar........

.....bara drífa sig úr stjórn hið fyrsta, annað væri kallað að vera með óráði. Legg til að þeir Lífeyrissjóðir sem aðild eiga að Framtakssjóði leggist nú á eitt og komi karli frá. Hik er sama og tap.
mbl.is Ætlar ekki að segja sig úr stjórn Framtakssjóðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

enn hvað með hinn korta svikarann er hann ekki b stjóri lögverndaðir glæpamenn

gisli (IP-tala skráð) 11.3.2011 kl. 14:48

2 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Já honum á að sparka líka, menn eiga ekki að hika - þetta lið á sér enga vörn

Gísli Foster Hjartarson, 11.3.2011 kl. 18:39

3 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Legg til að lífeyrissjóðirnir segi sig líka úr þessum framtakssjóði.

Jón Bragi Sigurðsson, 11.3.2011 kl. 20:17

4 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Já Jón Bragi er sammála þér að það átti ekki að stofna þetta í boði Lífeyrissjóðanna. Tala nú ekki um þegar menn selja svo ekki fyrirtækin strax og góð tilboð berast. Lífeyrissjóðirnir eiga ekki að vera í atvinnurekstri.

Gísli Foster Hjartarson, 11.3.2011 kl. 21:22

5 Smámynd: Jón Bragi Sigurðsson

Já og enn situr sá maður fastast sem formaður Landssamtaka lífeyrissjóða sem hafði þetta að segja á aðalfundi sömu samtaka vorið 2009:

"Stjórnvöld óskuðu eftir aðkomu lífeyrissjóðanna við upphaf bankakreppunnar og fóru fram fundir forystusveitar lífeyrissjóðanna með nokkrum ráðherrum í Ráðherrabústaðnum föstudaginn 3. október og laugardaginn 4. október sl. Erindi stjórnvalda var að óska eftir því að sjóðirnir flyttu heim um 50% af erlendum eignum sínum að verðmæti á þáverandi gengi um 250 milljarðar króna. Boðað var til mjög fjölmenns fundar á vegum LL fyrr á laugardeginum áður en haldið var á fund ríkisstjórnar nýjan leik. Sjóðirnir tóku vel í þessa málaleitan stjórnvalda að uppfylltum ákveðnum skilyrðum í ályktun. Ekki reyndi þó á þennan velvilja lífeyrissjóðanna þegar í ljós kom að morgni mánudagsins 6. október sl. að vandi fjármálafyrirtækjanna var mun meiri en reiknað hafði verið með."

Arnar og kó voru semsagt tilbúnir í -og virðist þykja leitt að hafa ekki fengið að framkvæma þennan "velvilja"- að taka heim 250 milljarða og henda þeim í bankasukkið rétt áður en allt hrundi og gengi krónunar féll með 50% sem hefði þýtt að 125 milljarðar af þessum peningum hefðu horfið á einu bretti. Og þessir sömu menn sitja enn við stjórnvölinn í lífeyrissjóðunum og virðast ekki sjá neitt athugavert við þetta heldur á að grípa það tækifæri sem gefst núna til að henda lífeyrissjóðnum okkar í atvinnubótavinnu í hagkerfi sem er hrunið og með ónýtan gjaldmiðil, sem eingöngu er hlegið að erlendis og fæst ekki einu sinni skipt.

Jón Bragi Sigurðsson, 12.3.2011 kl. 05:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband