Aular

Þjóðverjarnir voru aular að kasta þessum leik frá sér eftir að vera búnir að koma sér í þetta líka góða stöðu. Eg er viss um að það var grátlegt að vera þjóðverji þarna á leiknum. Ég horfði reyndar á leikinn á ZDF sjónvarpsstöðinni, missti reyndar af fyrstu 10 mín en ég hugsa að menn sé en með vasaklútana á lofti sem þar voru að lýsa. Svekkelsið yfir eigin aulagangi mikið.
mbl.is Þjóðverjar köstuðu frá sér sigrinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þetta kemur allt.....

Ferlið er langt og strangt og ekki hægt að búast við niðurstöðum strax í þessum miklu málum. EN ég sé ekki betur en að sérstakur saksóknari og hans fólk sé að vinna vinnuna sína og sé á réttri leið við að komast til botns í þessum málum öllum. Hvort það leiðir til dóma í öllum málum kemur svo í ljós. En mér sýnist þetta lið vera á réttri leið, ja allavega er góð hreyfing á málum þessa dagana. Vonandi verða ekki stigin feilspor sem gætu elitt til sýknu.
mbl.is Skýrslutökur halda áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki heill en samt....

Þetta þykir mér sérstakt. Hann stenst ekki læknispróf en samt á að reyna að fá hann - á nú bara bágt með að trúa þessu. Ég veit að þarna eru menn bara að taka hann að láni og eiga hann ekki en samt...
mbl.is Stoke vill fá Ba að láni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...berst á fáki fráum

En á ný er forseti vor, Ólafur Ragnar Grímsson, kominn í heimspressuna og spjallar um daginn og veginn. Get verið nokkuð sammala honum um þetta hérna:

Haft er eftir Ólafi Ragnari, að það muni á endanum ráðast af niðurstöðu í sjávarútvegsmálum hvort Íslendingar samþykkja að ganga í ESB.  


mbl.is Brown ætti að biðjast afsökunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Brottrekstrarsök

Er ansi hræddur um að fokið hefði verið í öll skjól hjá King Kenny ef að liðið hefði tapað fyrir Everton á heimavelli. Bæði liðin hafa ekki átt gott tímabil og því hefði hið hægfara ráðningarferli á nýjum stjóra þurft að fara á fullt hjá Liverpool.  Vona að liðið braggist hjá Kenny aðallega af því að mér þótti hann alltaf svo frábær spilari, hann hefur svo sem líka sýnt ágæta takta sem stjóri, þegar taugarnar hafa ekki tekið öll völd.
mbl.is Dalglish: Verð að hrósa mínum mönnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverju á að mótmæla?

Á að mæta til að mótmæla bara einhverju , já eða öllu? ...eða einhverju sérstöku?

 


mbl.is Boða til mótmæla á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gummi á jörðinni en....

Gummi Gumm landsliðsþjálfari er á jörðinni og veit að það er langt í land. Spurning hvort að þjóðin standi við hliðina á honum eða hvort hún er komin langt fram úr honum og liðinu í væntingum og vinnu?  Það þýðir ekkert svoleiðis og við verðum öll að vera samstíga í þessu stríði og vona það besta eitt hikst getur orðið dýrkeypt. Takist strákunum að vinna alla leikina í riðlinum koma þeir í milliriðlana í ansi góðri stöðu sem ætti að geta tryggt mönnum að lágmarki eitt af 6 efstu sætunum þegar uppi er staðið.      Áfram Ísland.
mbl.is Enginn leikur unninn fyrirfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Afar sérstakt?

Í ljósi þeirra upplýsinga sem að maður heyrir um að en sé allt fært í Landeyjahöfn og veðurspain fyrir morgundaginn er fín þá veltir maður því fyrir sér hvað veldur að menn ætla að sigla til Þorló í fyrramálið.  Er ekki einhver þarna úti sem getur svarað því?
mbl.is Fer til Þorlákshafnar í fyrstu ferð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Góður skyldusigur

Þótt risið á leiknum hafi ekki alltaf verið hátt þá er það svona leikir sem verða að vinnast til þess að halda haus. Tveir leikir - 2 sigrar. Ég er sáttur við það, en þið?  Þá er bara að njóta frídagsins á morgun og koma öflugir til leiks gegn Japanska liðinu á mánudag. 

Gaman líka að sjá ða fólk er verst í stúkunni að styðja við bakið á strákunum. 

Áfram Ísland 


mbl.is Ísland trónir á toppnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Karlinn kominn aftur

Þetta líkar mér að heyra. Ívar Ingimars að komast á flug á ný - nú mega hin liðin fara að vara sig, svo ekki sé sterkara að orði kveðið -

Ótrúlegt að Hemmi skuli ekki byrja hjá Portsmoputh í dag eftir frábæra innkomu gegn Brighton í bikarnum um síðustu helgi. Hef sagt áður og segi en Cotterill er ekki starfi sínu vaxinn!!!

Crewe komið í 5 sætið eftir sigur í nágrannaslagnum gegn Port Vale 2-1 - rúmlega 7 þúsund manns í stúkunum í kringum völlinn .....svo gera menn á Íslandi oft lítið úr neðstu deildinni þarna í Englandi.

Góður sigur 3-1 hjá Brighton heima gegn Peterborough. Erum en efstir með 4 stiga forustu og eigum 2 leiki til góða á Huddesfield sem er í öðru sæti og 1 leiki á Southampton sem er í 3ja sæti.

 Áfram mínir menn....


mbl.is Ívar í sigurliði Reading
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Órólegadeildin í VG

Það verður gaman að fylgjast með umræðunni á næstunni ef þessi dagur er eitthvað sem hægt er að nota sem mælikvarða á framhaldið. ESB umræðan er bara lítill dropi í umræðunni miðað við hvað Ólína og Jón Bjarnason, sem ræður vini til verka, hafa verið að boða í dag. Það verður einhver umræðan í sjávarsamfélögum þessa lands næstu misserin.

Gaman að sjá að Samherja menn láta ekki að sér hæða þeir eru búnir ða koma undir sig fótunum víða í Evrópu og verða bara stærri ef Ísland gengur í ESB, verða í frábærri stöðu sýnist mér - en það er annað mál


mbl.is Jón sendi stjórnlagaþingi bréf
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ólína komin á flug

Það vantar ekkiað Ólína Þorvarðardóttir er komin á flug og svífur um þessar mundir yfir fjallstoppunum. Nú býð ég bara eftir því að einhver skjóti hana niður.

Verður forvitnilegt að heyra svör og ræður manna í kjölfar þessa flugs hennar.


mbl.is Afnemi kvótakerfið strax í ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gengið yfir Portland í lokin

Tveir sigrar í röð núna. Vorum undir við upphaf síðasta leikhluta en seigla virðist leynast í liðinu þrátt fyrir allt. Góður sigur.  Nash seigur að vanda 23 stig 13 stoðsendingar, en aðrir virðast vera að ná sér á strik, sjá hér að neðan:

G. HillF36:11    0773 4 0400  21stig
C. FryeC-F40:47    1782 50030  12stig
R. LopezC21:40     2130 40310  10stig
V. CarterG28:05    022   0 22200  17stig
S. NashG32:51     06613 31300  23stig


mbl.is Sigurganga San Antonio heldur áfram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband