Annar svona?

Vona að John Ward sé að meina þetta og að Matthías verði kominn í liðið eftir næstu helgi. Yrði nú hörmung að fara að sjá svona fréttaflutning af Matthíasi eins og við höfum haft hér á mbl.is síðustu 5 mánuði eða svo. Ekki með, vermir bekkinn, ekki í hóp og svo framvegis. Vona að piltur fá að spreyta sig í 90% af leikjunum sem Colchester spilar meðan a hann er þarna úti.
mbl.is Matthías ekki með Colchester
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fögnuður?

Þeir sem að maður hittir segja flestir loksins, það hlaut að koma að þessu? Er það? Er fólk með einhver gögn undir höndum sem sérstakur saksóknari hefur ekki?

Nú er bara að vona að það komi eitthvað út úr þessu.......


mbl.is Í gæslu til 25. janúar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Var ekki viss.....

.....um að ég myndi nokkurn tíma sakna Adólfs Inga, og er ekkert viss um að ég geri það. En ef valið stæði á milli hans og Hödda Magg í handboltalýsingu þá væri valið auðvelt. En nú er valið auðvelt þarf að hlusta á hvorugan en leikirnir í læstri dagskrá
mbl.is Adolf Ingi situr heima
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hættulegt!

Það getur verið hættulegt að stíga á svið, maður getur runnið illa til.

Þá hefst í dag stress þjóðarinnar sem til að byrja með varir í viku. Erfiður leikur framundan og ljóst að við þurfum að eiga góðan leik til að sigra.


mbl.is Ísland stígur á svið í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Björn Valur er kóngurinn

....eða er það einhver annar? Gott að heyra að þessari vinnu miðar vel og það verður forvitnilegt að sjá hvaða spil menn draga upp úr stokknum núna. Er alveg viss um að niðurstaðan verður eitthvað sem við verðum öll sátt við ..........eða ekki!!!
mbl.is Segir Icesavevinnu ganga vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vel valið

Hef heyrt þennan mann hlaðinn lofi oftar en einu sinni þannig að ég held að þetta sé gott val.

En klárt er í mínum huga að Víkurfréttir eru klárlega ekki héraðsblað ársins. Tala nú ekki um eftir það hvernig þeir tækluðu mig og aðra frambjóðendur tilstjórnlagaþings, sem ekki komu af horninu þeirra, þegar kom að greinarbirtingum fyrir kosnignarnar - greinar okkar hvorki nógu góðar fyrir vef né blað. Þar sýndi ritstjórinn af sér það eðli sem að maður hefur stundum heyrt notað þegar talað er um hann, ekki merkilegur pappír.


mbl.is Maður ársins valinn á Suðurnesjum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sko Seyðfirðinga

Þarna er fólk sem að það veit að það kostar að fá sitt í gegn - þó mönnum þyki að kunna það ósanngjarnt í fyrstu. Við Eyjamenn og þeir er hingað vilja koma hafa þurft að borga veggjöld frá því að ég man eftir mér. Alveg finnst mér það í lagi, sé þjónustan góð,  þó svo að ég myndi ekki gráta ef að þetta yrði frítt.

Man alltaf þegar maður keyrði Humber Bridge í Englandi á sínum tíma alltaf var tollur borgaður fyrir að fara yfir blessaða brúna og þótti sjálfsagt enda brúin samgöngu bót mikil á þessum tíma - veit hins vegar ekki hvernig þetta er í dag þarna við Humber.


mbl.is Seyðfirðingar tilbúnir í veggjöld
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvur andsk.....

Hvað meina menn með því að ætla að fara að slá létt á fingur Berlusconi. Hélt að menn kæmust aldrei upp með að láta svona hluti koma fyrir!!! LoL     ....jújú ætli það megi ekki aðeins slá létt á fingurna á honum í ýmsum hlutum, hann hefur á stundum verið ansi áræðinn þessi elska.
mbl.is Dregið úr friðhelgi Berlusconis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Misheppnuð tilraun...

...til lendingar hjá geimverum finnst mér nú líklegasta ástæðan fyrir þessum sinubruna. Rétt eins og við mikinn sinubruna sem varð í Herjólfsdal í Vestmannaeyjum fyrir einum 28-30 árum þar var augljóst að fljúgandi furðuhlutur hafði reynt lendingu en það mistekist og hann því stungið af af vettvangi - finnst ekki ólíklegt að það hafi einnig gerst þarna.

bigufo

 

 

 

 

 

 

hér má sjá menn berjast við brunann í Herjólfsdal!

6140_1194892717312_1378260836_30566499_6909598_n


mbl.is Eldhringur í Vatnsmýrinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nash í ham

Jæja 2 sigrar í 3 leikjum og allir að kætast!! - verðum alla vega að vona að svo sé. Nash með góðan leik 16 stoðsendingar, 23 stig og með flest fráköstin í liðinu eða 7, eins og Channing Frye reyndar. Suns tóku líka fleiri fráköst en Jets, ekki eins og það gerist í hverjum leik. Vince Carter með 23 stig, Frye með 21 og Dudley inn af bekknum með 15.

Portland heima annað kvöld


mbl.is Clippers stöðvaði sigurgöngu Miami
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þarna þekki ég hann....

...þarna er maðurinn sem ég vil oftast kalla Villi vasaklútur að sýna sitt rétta andlit. Nú byrjar hann að grenja í fangið á hinum og þessum um að allir skulu fylgja honum.  Sá í gær í fréttunum þegar forkólfar skunduðu í stjórnarráðið. Það hefur algjörlega gleymst að skipta inn á þarna. Sama liðið virtist vera í öllum stólunum - mun eitthvað lagast á meðan? Hvert fór þetta lið með okkur?
mbl.is Ekki samið án lausnar í útvegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ja hérna og......

menn kvörtuðu undan Hodgson. Ætli það sé ekki í blessaðri leikmannaflórunni sem Benitez skyldi eftir sem þarf að taka til og gefa einhverjum góðan tíma til þess. Helst þyfrti hann að byrja á morgun og vera klár með liðið til leiks næsta haust.

Góður sigur hjá Ipswich, til hamingju Steini Mariner, en leikurinn á Emirates er eftir og þar eru Arsenal nú oft ansi sprækir.........en Ipswich er sýnd veiði en ekki gefin.


mbl.is Ipswich og Blackpool sigurvegarar kvöldsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefst þá dansinn

Þetta er bara í framhaldi af því sem é gbloggaði um í gær og ég er hræddur um að við fáum holskeflu af svona boðunum þetta árið. Hversu margar af þeim ganga eftir skal ósagt látið að svo stöddu. Verkafólk, láglauna og millistétt, eru orðin þreytt á aðgerðum öðrum til handa.
mbl.is Verkfall boðað um mánaðamót
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband