Mogginn leitar nýrra leiða

Nú leita menn allra leiða til að ná í meiri lesningu. Mikið kunni ég nú alltaf betur við gamla Moggann. Jú jú menn geta reynt að kalla þetta Monitor eða hvað sem þeir vilja hér á mbl.is,  en allt eru þetta júgur á sömu kúnni
mbl.is Með stærsta vininn í landsliðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gerist hér?

Hér í Eyjum eru menn að glíma við þetta vandamál, varðandi Díoxín, kannski ekki í sama magni en það væri gaman að sja´hvernig Kínverjar myndu bregðast við þessu varðandi vörur unnar í Eyjum. ...og okkur finnst þetta ekkert svo alvarlegt .....ja allavega ekki miðað við framkvæmdahraða.

set hér með frétt úr Eyjafréttum í Eyjum:

Meiri díoxínmengun í Eyjum en á Ísafirði

Meiri díoxínmengun í Eyjum en á Ísafirði
Díoxínmengun frá sorpbrennslunni í Vestmannaeyjum er 84 sinnum meiri en viðmiðunarmörk fyrir sorpbrennslur, sem starfa á grundvelli EES reglna frá 2003.  Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag en umfjöllun um díoxínmengun frá sorpbrennslu á Ísafirði hefur verið áberandi í fjölmiðlum undanfarið.  Mengunin í Eyjum er samkvæmt Fréttablaðinu meiri en á Ísafirði en mest er hún á Klaustri eða 95 sinnum meiri en EES reglurnar segja til um.

Í Fréttablaðinu er einnig sagt frá því að Umhverfisstofnun hafi fundað með embættismönnum úr umhverfisráðuneytinu í gær en þar voru lagðar fram tillögur um að eldri sorpbrennslustöðvar fengju tvö ár til þess að uppfylla skilyrði sem gilda fyrir nýjar sorpbrennslur þar sem m.a. er tekið mið af losun díoxíns. Fréttablaðið greinir einnig frá því að ísland sé á undanþágu gagnvart reglum um sorpbrennslu í gegnum EES samninginn sem tóku gildi 2003. Díoxínmæling var gerð 2007.

 


mbl.is Kína bannar þýsk egg og svínakjöt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eigendur að hygla sjálfum sér?

Ætli öðrum sem tóku lán til einhverrar einkaneyslu verði boðið að breyta sínum lánum? Fá jafnvel sömu kjör og eigendurnir?
mbl.is Skilmálum lána vegna stofnfjárkaupa breytt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Löngu þekkt staðreynd!

Það hefur nú löngum verið orðið á götunni að City eigi fleiri aðdáendur í borginni en United. Hef personulega ekki tekið þetta út, en alveg frá því að ég kom þarna fyrst 1986 þá hefur þetta verið orðrómurinn. Hvort þetta er rétt verða aðrir að afsanna. það hefur löngum verið þannig að mikið af fólki á hverjum United leik eru túristar og fólksem býr utan Manchester en City hefur verið meira í því að hirða upp fólk innan borgarmarka.
mbl.is City vinsælast í Manchester
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þýskaland = England

Datt nú í hug þegar ég las þetta með Þjóðverjana:

Athygli vekur hve litla trú vefmiðillinn hefur á Þjóðverjum. Ellefta sætið þeim til handa er rökstutt á þann hátt að Þjóðverjar séu með miðlungslið en miklar væntingar. Áhugi á handbolta sé mikill í Þýskalandi en þá vanti sjálfa leikmenn í fremstu röð og spili oft leiðinlegan handbolta. 

Að þetta er ekki ósvipað Englendingum í fótboltanum - Miklar væntingar yfir engu. Tel þó að Þjóðverjar séu líklegri til að hrista af slenið í handboltanum en Englendingar í fótboltanum.

Við verðum svo í 3 - 6 sæti


mbl.is Króatar líklegir til að fara alla leið á HM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Alveg er þetta sérstakt

Þetta er nú hörmungaratburður svo ekki sé meira sagt. Þess vegna skil ég ekki hvers vegna fólk getur sett Like á fréttina!  En þið?
mbl.is Brúður fannst látin á hótelherbergi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fyrsta sprengjan?

Þetta skyldi þó ekki vera fyrsta sprengjan sem hittir kjaraviðræður þetta árið. Ég hef þá trú að það verði nóg af svona aðgerðum í vetur. Verkafólk, eins og annað fólk sem ekki eru með tunguna úti sleikjandi rassinn á hinum og þessum, er búið að fá meira en nóg af því að lesa fregnir um hina og þessa afskriftina. Hina og þessa klíkuráðninguna. Hitt og þetta bruðlið sem lendir svo á milli og láglaunastétt meðan aðrir labba í burtu eins og ekkert hafi í skorist.  Þeir hinir sömu neita launafólki um 5% launahækkun á meðan þeir sjálfur hækka sín laun um Guð má vita hvað mörg % og greiða sér svo ríflegan arð fyrir "vel unnin störf"  Fólk er bara komið með upp í kok og því hef ég trú á að fólk láti ekki bjóða sér svona lengur - Það gætu fallið nokkrar sprengjur gott fólk. Hverjir verða fyrir þeim veit ég ekki.
mbl.is Greiða atkvæði um verkfall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Cotterill er kjáni

Gef nú ekki mikið fyrir orð Cotterill. Held að það hafi sést best í leiknum um síðustu helgi gegn Brighton hversu mikilvægur Hermann er fyrir liðið, og ætti því að byrja hvern leik. Coterill henti honum inn á í hálfleik fyrir Kanu og setti hann í vinstri bakvörðinn, Staðan var þá 2-0 fyrir Brighton. Það var fyrst þá sem að leikmenn Portsmouth vöknuðu til lífsins eftir að hafa verið yfirspilaðir megnið af fyrri hálfeik. Þeir sköpuðu usla í vörn Brighton, þrátt fyrir að vera einum færri. Hemmi fékk gott færi sem nýttist ekki en hann átti þátt í að þeir minnkuðu muninn í 2-1.  Brihgotn tróð svo einu inn á 90 mín. þegar menn voru að rembast við að reyna að jafna.

Kannski að Coterill átti sig ekki á því að liðið þarf að mæta í góðum gír og á tánum til leiks til að hala inn stig. - Ég persónulega skyldi aldrei þessa ráðningu á Cotterill - Út með Cotterill


mbl.is Hermann á enn nokkuð í land
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sami munnbitinn aftur og aftur

Ætli þingheimur sé ekki orðinn þreyttur á að vera alltaf að tyggja sama munnbitann aftur og aftur. Þetta lítur orðið út eins og engin mál séu til umfjöllunar á þingi önnur en ESB-umsóknin.

Málið er í ferli klárum ferlið. Svo tekur þjóðin bara afstöðu - punktur.

Þetta eilífa hringl í einu og öllu er farið að minna mann sífellt meira á sandkassaleik á leikskóla ...ja reyndar er samlykíngin ekki rétt því að krakkarnir vita hvenær á að hætta.

Hvað eru menn eins og Ásmundur Daði t.d. að hugsa? Það var samþykkt að fara í þetta umsóknarferli - klárum það bara. Hann getur unnið að sínum hugðarefnum í Heimssýn og komið með þau fram þegar þar að kemur, þ.e.a.s. þegar þjóðin á að greiða um málið atkvæði. Aðlögun eða ekki hverjum er ekki sama? Ef allt er svona slæmt í ESB hvað erum við þá að gera með um það bil 80% af þeirra regluverki nú þegar í gangi í okkar samfélagi? Hverslags rugl er þetta eiginlega?


mbl.is Þingið endurnýi umboð til ESB-umsóknar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert að frétta úr Toppnum?

Það held ég að Kalli í Toppnum við Heiðarveg hér í Eyjum sé hljóður þessa stundina. Hann getur ekki verið sáttur við að sjá sína menn detta úr leik gegn Crawley í bikarnum. Hér eru brot úr leiknum:


mbl.is Derby slegið út af utandeildarliði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Mikill fengur?

Hann hefur þótt klókur og góður þjálfari Steve Clarke, svona mannlegu nótunum þjálfari,  og ég vona að honum farnist vel hjá Liverpool. Kannski að þeir bjóði líka Ray Wilkins stöðu sem þjálfara á næstu vikum. Einn annar sem að mér dettur í hug sem svona þjálfari á bak við tjöldin er Steve Holland, sem að nú er hjá Chelsea og var áður eitt af tryggu hjólunum hjá Crewe þar til honum var falin yfirstjórn mála þá fataðist honum flugið en hann fékk svo vinnu hjá Chelsea þar sem hann er að gera fína hluti. Þjálfari sem kann að móta og búa til leikmenn eitthvað sem sárlega hefur vantað hjá Liverpool síðastliðinn áratug.
mbl.is Clarke: Tilboð sem ég gat ekki hafnað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vá hvað ég er hissa ....not

Magnaður leikmaður. HM var kannski ekki alveg hans keppni en íöllum öðrum keppnum - Guð hjálpi okkur hreint út sagt magnaður þessi lágvaxni galdramaður.


mbl.is Messi knattspyrnumaður ársins 2010
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...að taka frumkvæðið

Jæja gott fólk þá er komið að okkur, þjóðinni, að fara að huga að því að taka upp aðra orkugjafa og það sem fyrst. Eitthvað sem verðið verður stöðugra á og við getum nálgast á auðveldan hátt hér á landi. Held að flestir séu nú sammála um að sá tími er að nálgast. Reynum að ná frumkvæðinu, förum fram úr öðrum þjóðum í þessu.

Verð reyndar á svona stundum að segja að það er gott að búa í Eyjum þar sem tankurinn á bílnum dugar kannski í 3 vikur og rúmlega það, það er að segja á meðan maður er ekki að þvælast upp á land í gegnum Landeyjahöfn.


mbl.is Skeljungur hækkar eldsneyti
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.