30.1.2011 | 12:22
Frábær sigur
Frábær úrslit gegn Magga Vals og félögum hjá Watford. Við komnir einu skrefi lengra í bikarnum og þar með tveimur skrefum lengra en Liverpool í bikarnum þetta árið. Gotta ð hafa það í bakhöndinni þegar umræðan um bikarkeppnina hefst í komandi vinnuviku. En vona samt að bikarkeppnin fari ekki að slá á gengið í deildinni. Mikilvægt að komast upp þetta vorið til að byrja næstu vertíð á nýja vellinum í nýrri deild.
![]() |
Úrslit dagsins í enska bikarnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2011 | 15:51
Skotnir af tvíslánni
Piltarnir í Fimleikafélagi Hafnarfjarðar skotnir niður í dag. Ekki leiðinlegt þegar maður fréttir af sigri gegn þeim. Jájá ég veit að þetta er eitthvert smámót, já stórum vefmiðli, en við notum það til að ná sálfræðilegum yfirburði gegn Fimleikafélaginu sem mun nýtast okkur vel næsta sumar. (vona ég)
Áfram ÍBV
![]() |
ÍBV setti þrjú í seinni og vann FH |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.1.2011 | 15:25
Hahahaha
Jóhanna er náttúruelga alveg eins og aðrir alþingismenn með lepp fyrir öðru auganu, akkurat auganu sem sjá á ruglið sem fylgt hefur henni og hennar félögum. R'ett eins og aðrir þingmenn eru flestir með lepp af sömu gerð fyrir augum sínum. Niðurstaðan ruglið heldur áfram og ekkert breytist. Það að eitthvað gerist og breytist og að þjóðin komist jafnvel einhvern tíma almennilega á lappirnar verður almenningi í landinu að þakka ekki þeim er farið hafa með ferðina, hvorki fyrir eða eftir hrun. Spurningin er aftur á mótu um þolinmæði almennings í garð þessara arfturhalds og eigin hagsmuna afla sem fóru með og fara með völdin í landinu og láta eins og ekkert hafi gerst á þeirra vakt.
Í hvaða vestræna, ja eða bara yfirhöfuð siðmenntaða ríki hefði verið hægt, og er hægt, að arka áfram eftirlitslaust eins og hér á landi? Málið er bara að núna í augnablikinu eru nokkrir bankamenn með spilin og eru að deilda út bisness á vini og kunningja.
Kannski í leiðinni að nefna það sem kom fram í fréttum umd aginn varðandi Sparisjóð Keflavíkur þar sem ruglið virðist hafa verið framleitt á færibandi - til hvers í ósköpunum eru menn að draga slík fyrirtæki að landi? ...svo kannski sömu aðilar að stjórna áfram. Sparisjóður Vestmannaeyja fór á ennið, ríkið kom þar að líka. Sama stjórn var kosinn aftur!!!! en vonandi ekki til langs tíma, allavega miðað við fyrri árangur - það hlýtur að kalla á nýja stjórn þegar menn koma banka á hliðina.
![]() |
Eru að leika sér að eldinum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.1.2011 | 13:28
EInstök þjóð?
![]() |
Dæmi um að foreldrar selji rítalín ætluð börnum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.1.2011 | 22:39
Flottur árangur en....
....eftir svona skemmtilega byrjun á mótinu þá er maður nú pínu svekktur. En er það ekki mikil frekja að ætlast til þess að við séum að ná jafnvel í verðlaun á ÓL, EM og HM mót eftir mót? Við höfum tekið verðlaun á 2 mótum í röð fram að þessu og það eru nú ekki allar þjóðir sem eru að klára slíkt. Ég vonaðist eftir einu af 6 efstu sætunum fyrir mót og það gekk eftir - svo ekki ætla ég að vera í fýlu lengi yfir þessu.
Þakka bara þeim er að þessu koma, hvert svo sem hlutverk þeirra var, fyrir góða skemmtun og góðan árangur - áfram Ísland
![]() |
Eins marks sigur Króata |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
28.1.2011 | 22:31
Bjarni með vafning...
..og bara reiðubúinn til að bretta upp ermar. Þó fyrr hefði verið!
Það sem mér þykir reyndar ekki tíðindi er að hann skilur ekki að þó að þátttaka hafi ekki verið samkvæmt væntingum í kosningum til stjórnlagaþings þá er það svo að Alþingismenn, sama hvaða nafni þeir heita, njóta ekki mikils stuðnings þessa dagana nema þá helst hjá einhverjum hirðseinum eða meyjum.
Hvað með útspilið að þingmenn og fulltrúar utan þings komi saman að þessari vinnu. Vandræðin hafa nefnilega verið að menn og konur í sömu stöðu og Bjarni hafa ekki getað tekist á við að breyta stjórnarskránni. Held að sú vídd að hleypa utanaðkomandi að, já eða leggja til grunninn sé óvitlaus hugmynd. Svo á að leggja stjórnarskrána fyrir þjóðina. Fáist hún samþykkt þar á hún að fljúga möglunarlaust í gegnum Alþingi. Alþingi eitt og sér á ekki að fara með ferðina í þessu.
![]() |
Vill hefja endurskoðun stjórnarskrárinnar strax |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.1.2011 | 18:40
Vá hvað ég held.....
.....að margir fái úr ..... .... . Tek ofan fyrir Landskjörstjórn að gera þetta. Finnst þetta fólk sýna ákveðna sóma tilffinningu með þessari afsögn, já og svara kalli margra í þjóðfélaginu sem hafa margir hverjir reytt hár sitt og jafnvel skegg síðan Hæstiréttur kvað upp dóm sinn.
![]() |
Landskjörstjórn sagði af sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 21:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.1.2011 | 15:46
Vísað á dyr!
![]() |
Orkuveitan ekki einkavædd |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.1.2011 | 11:30
Landeyjahöfn - Þorlákshöfn
Í ljós allrar umræðu um Landeyjahöfn, færð og ófærð, þá fannst mér tilvalið að stela þessari mynd af síðunni hjá honum Jóa listo - en þetta er fengið, eins og þarna sést, úr eðalblaðinu Dagskrá, sem prentað var hér í smiðjunni áratugum saman. Þessi frétt var í blaðinu10 mars 1989.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2011 | 08:43
Fínt að byrja vel
Það getur verið fínt að byrja undirbúningstímabilið vel. Það sem er kannski mikilvægara fyrir ÍBV -liðið er að allir erlendu leikmennirnir eru komnir til landsins og því geta menn reiknað liðið út aðeins fyrr en vanalega því öll púsl ættu að vera komin í hús nú þegar. Auðvitað getur vel verið að stjórnin ætli að næla í fleiri leikmenn en ég er ekki alveg viss hvernig staðan á því er en mín tilfinning er að liðið sé orðið það dýrt í rekstri nú þegar að ekki sé mikið svigrúm til að bæta við leikmönnum, ja allavega ekki einhverjum ásum, en við sjáum hvað setur. Okkur gekk vel í fyrra og maður vonast auðvitað eftir slíku aftur, en svo er alltaf spurning hvað á að leggja undir fjárhagslega til að vonast eftir einhverjum árangri. Deildin var í fyrra fannst mér slappari en oft áður en jafnari og lið eins og KR og FH vöknuðu seint til lífsins og Keflavík svaf yfir sig nánast frá 4 umferð eða svo. - Hlakka til sumarsins.
En við eigum leik við FH á morgun ef ég man rétt sigur þar og fjörið heldur áfram í fótbolta.net mótinu. Kannski rétt að nota þetta tækifæri og þakka fotbolta.net fyrir að koma þessu móti á laggirnar - það var vel til fundið.
![]() |
ÍBV vann á Akranesi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
27.1.2011 | 20:13
Eru mennirnir ekki að grínast?
![]() |
Maria Amelie verði Íslendingur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (15)
27.1.2011 | 16:15
Spennandi
kjölfar hins mikla innflutnings á leikmönnum á unga aldri héðan og þaðan
úr heiminum. En því verður ekki neitað að báðir þessir leikir eru kjörið tækifæri fyrir piltana til að láta ljós sitt skína og halda þeim góða takti sem verið hefur i spilamennsku liðsins.
![]() |
Strákarnir mæta Englandi 28. mars |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.1.2011 | 09:57
Minn maður
![]() |
Liverpool fær frest til laugardags |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)