Hef heyrt margt vitlausara

Þar sem ég er fyrir nokkru búinn að sætta mig við 56 sætið í þessari kosningu. Ég kvartaði heldur ekki undan neinu við framkvæmd kosninganna. Ég bauð mig heldur ekki fram af því að ég var á móti stjórnlagaþinginu. Ég var heldur ekki fulltrúi neins annars en sjálfs mín í þessum kosningum en vonaðist eftir að fólk sæi  að ég hefði eitthvað fram að færa til þessa málefnis og það treysti mér til verksins. Ég hef trú á verkefninu. Ég hef trú á fólkinu sem var kosið. Ég vil sjá þetta þarfa verkefni sett af stað og vona innilega að það skili okkur raunhæfum hugmyndum sem lagðar verða í dóm þjóðarinnar.

Ég veit af vanköntum sem sett var út á. Tek undir með Hæstarétti þá svo að í sumum atriðum fannst mér verið að teygja lopann aðeins en bókstafir eru bókstafir. Ég vona að þessi bókstafstúlkun Hæstaréttar verði hér eftir höfð að leiðarljósi í öllum málum. 

Að endurtaka ferlið er dýrt, en það er líka lýðræðið. En ég get samt alveg sætt mig á þessa hugmynd þessa ágæta manns, Gunnars Helga Kristinssonar.


mbl.is Verði skipaðir í stjórnarskrárnefnd
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undirskriftasöfnun!

Höskuldur á bara að fá þjóðina í lið með sér og hafa undirskrfitasöfnun til að fá fólk til að segja sinn hug varðandi það hvað það vill gera í þessu máli. Kannski að menn hlusti þegar þeir heyra vilja þjóðarinnar. ...skora á Höskuld að fá sitt fólk til að opna síðu, ég kann ekkert svoleiðis en ég skla kvitta með glöðu geði.

Sorglegt ef að menn ætla ekki að birta það sem máli skiptir þarna. Það er engin að segja að það þurfi að birta allt sem þarna var sagt eflaust eitthvað af því sem kemur þjóðinni þannig séð ekki við.


mbl.is Krefst þess að trúnaði verði aflétt
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá byrjar........

...taugatitringurinn. Mikið framundan, miljarðar undir og góðrar innkomu að vænta hjá útgerðum og fiskvinnslum.

Ágætis tekjuaukning hjá þeim er starfa í bræðslunum en þó aðeins með því að menn vinni myrkranna á milli á vöktum alla daga vikunnar í einhverjar vikur. Það verður gaman að sjá hvert næsta útspil verður í þessu máli. Moggamenn hljóta að styðja verkfallsboðendur því þeir hafa farið mikinn í því að tala um hverslags svakalegar fjárhæðir komi inn í þjóðarbúið í gegnum loðnuna t.d. og sjá þannig að kannski er hægt að hækka laun manna eitthvað er í þessari grunnatvinnugrein vinna.


mbl.is Samþykktu verkfall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ingólfur iðinn við.......

Veit eiginlega ekki hvað maður á að segja þegar en er verið að vitna í menn eins og Ingólf Bender eftir allt sem á undan er gengið. Hefur einhver trú á þessu liði? Tekur einhver mark á því sem hann hefur fram að færa?
mbl.is Átti von á minni lækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt á réttri leið

Er þetta ekki eitthvað bogið alltaf allt vitlaust ensamt virðast hlutirnir vera á réttri leið, allavega að einhverju leyti.  Engin stjórn ílandinu og ég veit ekki hvað og hvað .......eða erum við núna að horfa á sýndarveruleikann frá annarri hlið heldur en 2007?
mbl.is Verðbólgan komin í 1,8%
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábær sigur

Mávarnir rúlluðu yfir Colchester í kvöld 2-0. Komnir með 6 stiga forskot í deildinni og eigum einn leik inni á næstu lið. Matthías Vilhjálmsson lánsmaður frá FH sat á bekknum i dag og kom ekkert við sögu. Kannski bara neitað að fara inn á Smile Mávarnir fara inn í febrúarmánuð á toppnum og með hverjum leiknum sem líður aukast líkurnar á að við förum upp, þ.e.a.s. á meðan við spilum svona. Það yrði ekki leiðinlegt að komast upp í vor og byrja á nýja vellinum í haust í anæst efstu deild. 


mbl.is Ótrúlegur sigur hjá Manchester United
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna flytur skýrslu...

.....úr einu herbergi í annað.  Enda er þetta lið þarna varla hæft til annars
mbl.is Jóhanna flytur skýrslu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað gerir þjóðin?

Maður veltir fyrir sér viðbrögðum þjóðarinnar vegna þessara hækkana allra. Ekki mun hún sína samstöðu gegn þessu hækkunum sem ekkert samráð er um þó þær eigi sér allar stað á sama tíma og svo framvegis.

......eina breytingin frá því sem áður var er sú að nú sefur domsmálaráðherra ekki hjá forstjóra eins af olíufélögunum, ja nema að það sé eitthvað sem ekki hefur en komið í ljós.


mbl.is Eldsneytisverð stefnir í hreina sturlun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hverjir segja af sér?

Ég sem frambjóðandi svekki mig á þessu. Lagði reyndar ekki í nema kannski 10 þúsund króna kostnað, sem veldur mér nú ekki áhyggjum en fyrst þessi dómur er falinn þá langar mig að vita hverjir af þeim er sáu um famkvæmdina munu þurfa að segja af sér...........

Ég í raun sá ekki ástæðu til að kvarta undan framkvæmd kosninganna að flestu leyti þó vissulega hefði verið óhætt að leyfa fulltrúa frá frambjóðendum að fylgjast með talningu.

Erum við þá að tala um að ég bjóði mig aftur fram?


mbl.is Stjórnlagaþingskosning ógild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er í liði með Höskuldi

Þetta á að birta og ekkert múður með það. Af hverju þarf þetta pukur? Hvort þetta breytir einhverju í Icesave eða ekki kemur bara í ljós - þjóðin á bara heimtingu áþví að þetta sé spilað fyrir hana. Í Guðanna bænum hættið þessum eindalda feluleik. Það er eins og sumir þurfi að haga sér svona til að láta líta út eins og þeir séu með eitthvað merkilegt í höndunum og því séu þeir sem persónur orðnar mikilvægar og merkilegar ......en þetta er svo langt frá því.
mbl.is Segir samtalið eiga erindi við almenning
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hóst, hóst

Maður hefði átt að fagna meira birtunni sem sólin gaf frá sér í síðustu viku. Algjört myrkur núna, 2 töp í röð og sumir leikmenn algjörlega heillum horfnir. Vince Carter t.d. með aðeins 2 stig í gær. 3 eða 4 leikurinn í röð sem hann er alveg úti á túni. Gortat var góður í síðustu viku, afleitur í gær. Nash með 9 stoðsendingar og 17 stig í nótt og Jared Dudley virðist halda áfram að vaxa kom inn af bekknum og setti niður 23 stig og tók 7 fráköst.  ....menn þurfa að girða sig í brók.

Nash vantar núna 120 stoðsendingar til að ná Gerry Payton á stoðsendingalistanum og 220 til að ná í skottið á Isiah Thomas. Hann gæti náð því á þessu tímabili spili hann áfram eins og hann hefur verið að gera og sleppi við meiðsli.


mbl.is West tryggði níunda sigurinn í röð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skynsamur piltur

Er ánægðu með það sem að Karabatic segir þarna:

,,Við mætum í leikinn við Ísland með því hugarfari að vinna. Við munum ekki velja okkur mótherja. Ég trúi að slíkt boði ógæfu. Danmörk og Svíþjóð hafa á sterkum liðum að skipa svo það skiptir í raun ekki máli fyrir okkur hvor þjóðinni við mætum,“ sagði Karabatic. 

Oft hafa menn, já og konur, farið flatt á því að ætla að fara einhverja upphugsaða einfaldari eða auðveldari leið að settu marki. Það boðar ekki gott og því er ég ángæður með Karabatic og hlakka til að sjá þá lemja á Svíum í undanúrslitum!!!


mbl.is Karabatic: Veljum okkur ekki mótherja
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Meira olnbogarými....

...fyrir okkur hin, ekki satt?
mbl.is Fleiri fluttu út en hingað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband