Færsluflokkur: Bloggar

Eyjamenn ekki lengur heitir....

...heldur svalir!!!   ....en hvoru tveggja hefur fólk svo sem talið sér til tekna og víst er að svo er um margan Eyjamanninn.
mbl.is
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Guðni úti á túni?

Fór Guðni þarna fram úr sjálfum sér? Verður gaman að sjá hver næstu skref hans verða. Skondið að ég heyrði engan gera mál úr þessu sem Davíð Þór skrifaði um hann nema þá hann sjálfan og Guðni er þannig að klóra ofan af gömlu sári sem allir voru hættir að sjá. Þó einhver hafi minnst á þetta mál þá gerir hann mistök með því að gala eins og hani  um málið og gerir það að aðalatriði í grein Davíðs Þórs sem að það svo sannarlega var ekki, og ekki einu sinni nálægt því.

Tími Guðna  er liðinn en hann virðist ekki frekar en margir aðrir af þessum gömlu skápum gera sér grein fyrir því - því miður.


mbl.is Skilur ekki afstöðu Guðna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sorgleg afstaða

Get ekki annað en brosað þegar ég les svona. Við skulum endilega senda öllum langt nef og láta eins og við vitum allt best og höfum alltaf rétt fyrir okkur.  Við erum þjóðin, það erum sko við sem ráðum!!!! Ég er ekki hissa þó orðspor okkar sé laskað um víðan völl.


mbl.is „Ekki semja um makrílinn“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Læt það ógert...

.....að fagna þessu. Hann þarf að standa sig ansi vel til þess að ég verði ánægður með að menn hafi krækt í hann. En menn hljóta að gera betur með næstu "kaupum"  Smile
mbl.is Wayne Bridge lánaður til Brighton
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Frábært!!!

Hvaða rugl var eiginlega í gangi þarna?  Dómarinn og þjálfararnir orðnir mikilvægari en leikmennirnir og leikurinn. Jalló við erum að tala um 4 flokk karla hérna. Bara neita hreinlega að trúa þessu. Þjálfaranum er vísa af bekk og kemur sér fyrir á meðal áhorfenda.  Stuðnignsmanna síns liðs, en ekki hvar?

Verður gaman að sjá hvort þetta mál verður krufið frekar.  Það hljóta að vera einhver vitni á meðal foreldra sem geta sagt söguna, já eða þjálfari Breiðabliks!!!


mbl.is Yfirlýsing þjálfara KA
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vá hvað hann á erfitt!!!

Ætli Villi vasaklútur sjái aldrei glaðan dag?


mbl.is Áhyggjur þrátt fyrir betri tíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

....betri leið!

Væri ekki rétt að skrá United bara í Kauphöllina í Reykjavík? Hér er flæðið og hér er markaðurinn. EN það er í raun ótrúlegt hvað United er skuldugt, þrátt fyrir afglöp blessaðra eigandanna við kaupin á liðinu á sínum tíma. En það eru nú svo sem önnur lið í tómu tjóni. Það verður gaman að sjá hvernig lið spila úr þessu á næstu árum. UEFA að setja strangari reglur um fjárhagsramma félaganna og því verður forvitnilegt að sjá hvernig menn spila úr sínum málum  á næstu misserum.
mbl.is Skuldugt Manchester United á markað í Bandaríkjunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Spot on....

Þarna hittir Lilja naglann á höfuðið.  Skortur á endurnýjun á sinn þátt í að traust á Alþingi er ekki betra. Endurnýjun ekki  gengið sem skyldi. Kannski líka skortur á hæfileikaríkara fólki. Það er oft sagt að þeir sem klókir eru bjóði sig ekki fram í svona störf þar sem skítkastið getur orðið meira en góðu hófi gegnir? Ég skal ekki segja - finnst nú fólk atað drullu ansi víða. Ég tel líka ða það sé kominn tími á hámarkssamfellda setu á Alþingi. 3 kjörtímabil í röð er yfirdrifið nóg. Svo eiga aðilar að draga sig í hlé eitt kjörtímabil en ef að þeir telja sig njóta þeirrar hylli sem til þarf þá geta þeir boðið sig fram aftur eftir það.

En það er hægt að vera með ýmsar vangaveltur í sambandi við allt þetta traust. Getur verið að traustið sé líka lítið af því að mörgum finnst að Alþingi hafi átt að redda þeim hinu og þessu? Jafnvel hjálpa fólki úr skuldasnörunni, sama hvort því sé bjargandi eða ekki? Á þá ekki jafnt að ganga yfir alla? Á þá ekki að skoða skuldasafnið mitt eins og önnur þó ég hafi kannski farið hægar í söfnun skulda en margur annar, en samt jafnvel dýpra í fenið en aðrir!

Með heiðarleika og hreinni framkomu öðlast fólk yfirleitt traust, það á við um þingmenn eins og aðra.


mbl.is Vantraustið vegna skorts á endurnýjun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nálgumst Brassana....

.....hægt og örugglega - ekkert liggur á.
mbl.is Ísland í 129. sæti á FIFA listanum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sparkað á dyr...

...Berbatov verður kominn í annað lið áður en glugginn lokar. Hann ætlar ekki að taka annað svona tímabil hjá United svo mikið er víst. Jújú flottur spilari enginn þrætt fyrir það svo sem, sem ég þekki (ekki eins og það séu allt einhverjir sparkspekingar), en hann ætlar sér ekki að verða farþegi næsta vetur á Old Trafford þegar aldurinn færist yfir.
mbl.is Berbatov enn inni í myndinni hjá Sir Alex
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband