....næst síðasti leikur Arsenal!

.......í FA Cup þetta árið og hann endaði með sigri.

Þá er það á hreinu það verða Arsenal menn sem koma í heimsókn á Amex Stadium í Brighton aðra helgi og etja kappi við mína menn. Það verður gaman og ég hef fulla trú á að mávarnir hefji sig til flugs og driti yfir peyjana hans Arsene Wenger! Svo verðum við í hattinum þegar dregið verður í næstu umferð.


mbl.is Wilshere skaut Arsenal áfram í bikarnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjalla-Eyvindur og Halla!

Veit ekki með ykkur en þetta var það fyrsta sem mér datt í hug þegar ég sá fyrirsögnina á greininni!!!

En það er gott að það eru ekki þau sem eru í haldi heldur eitthvað lið sem virðist stefna á að vera mun skæðara í samfélaginu en Fjalla-Eyvindur og Halla og aðrir íslenskir útlagar voru á sínum tíma. - vel gert hjá lögreglunni, er ánægður með hana, nú sem áður.


mbl.is Útlagar í haldi lögreglu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki málið þá er það bara næsti leikur!!!

Vissum alltaf að þetta yrði erfitt - þó ég hafi nú spáð jafntefli. Danir með feikiöflugt lið og það er ekki eins og okkur hafi alltaf gengið vel með þá. Segi eins og Snorri Steinn tökum það jákvæða úr þessum leik og tökum með okkur í næsta leik. Sigur í næsta leik er skilyrði eftir þann leik getum við farið að teikna upp framhaldið, ekki fyrr. ....áfram Ísland nú sem áður
mbl.is Snorri Steinn: Vorum rassskelltir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hann er mættur á netið gott fólk

...og hann má skoða hérna.  Gjörið þið svo vel. Nú er bara að njóta

 Áfram Ísland

 


Sá hlær best sem...... hvað segir þú?

Wilbek veit hvað hann syngur. Hann hefur margsýnt það sem þjálfari. Nú er það í höndunum á okkar strákum að hrófla aðeins við því og taka af hans mönnum stig eða tvö - það yrði vel ásættanlegt svo ekki sé meira sagt.

Ætla að leyfa mér að spá 23-23 en þú?


mbl.is Wilbek: Góður varnarleikur hjá Íslendingum á HM
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Berja á honum og hinum!!!

Þetta er nú ekki flókið dæmi varðandi leikinn í kvöld. Það þarf að berja hraustlega á Lindberg og félögum og láta þá finna fyrir því og vel það. Þá eigum við séns, annars ekki. Ég treysti strákunum til að gera sér grein fyrir því og leggja sig 100% fram og rúmlega það. Við fáum allavega stig úr leiknum ef ekki meira.
mbl.is Hans Óttar Lindberg: Svolítið sérstakir leikir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á að taka þetta upp hér á landi?

Sinn er siður í hverju landi var einhvern tíma sagt ef minnið er ekki að svíkja mig, eins stjórnvöld eru að gera!!!  Skemmtilega hugmynd alveg hreint þessi pæling um buxnalausadaginn. Eina sem ég sé að þessari frétt að ég hefði haldið að það hefði verið þúsundir sem tóku þátt í buxnalausadeginum en ekki hundruð. Mexíkóborg er sennilega einhver stærsta borg í heimi og miðað við þessar myndir þá hef ég trú á að fleiri en nokkur hundruð hafi tekið þátt - ja nema að þetta hafi bara átt við eina litla lestarstöð í litlu úthverfi!!!!

Mætti alveg spá í að taka þetta upp hér á landi - að sumarlagi þá - og sjá hvaða viðbrögð menn fá. Það hljóta að vera einhverjir þarna úti sem eru til í að skipuleggja þetta!!!


mbl.is Allir buxnalausir í lestunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 16. janúar 2013

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband