13.3.2014 | 23:54
Snillingar þessir peyjar
Sérdeilis frábær árangur sem Eyjapeyjar eru að ná í vetur í deildinni. Gaman að sjá ÍBV nafnið svona ofarlega á töflunni eftir mörg frekar mögur ár í klisturkastinu hjá körlunum. Er orðinn þess alveg fullviss að þetta ár mun enda með einni allsherjar flugeldasýningu sama hvað hver segir. Afram ÍBV - alla leið
![]() |
Fjórði sigur Eyjamanna í röð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2014 | 15:29
Ævintýri að eignast barn!!!!
Þetta er bara orðið meiri háttar mál að eignast barn og búa í Eyjum. Þetta er náttúrulega á engan hátt boðlegt, svo vægt sé til orða tekið. .....þetta er nú ekki vænlegt til eflingar byggðarlags eins og okkar ef þetta er í svona miklum lamasessi sem nú er. En til hamingju með nýjasta fjölskyldumeðliminn Aníta og Sigurður Oddur.
Við skulum svo vona að það rætist úr málum hérna í suður höfum á næstunni.
![]() |
Þriggja tíma sjóferð með nýfætt barn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
13.3.2014 | 07:57
...og við sitjum eftir!!!
Erum við að tala um að mönnum hafi tekist að sofa á verðinum og látið semja sig útaf borðinu? Nú þurfa menn heldur betur að spýta í lófana. Við getum ekki bara setið, borað í nefið og sagt alltaf að allir hinir séu vondu gaurarnir. Hvernig gat þetta gerst?
![]() |
Færeyjar, Noregur og ESB semja um makríl |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)