Snilldar sjávarréttarsúpa

Skellti mér fótgangandi niður Laugaveginn í dag með konunni. Á leiðinni var ákveðið að koma við á einvherjum stað óg fá sér eitthvað létt í nepjunni. Kíktum inn á stað sem heitir Scandinavian, svona um miðjan Laugarveginn sennilega.

Skelltum okkur þarna á sitthvorn diskinn af Sjávarréttarsúpu. Þvílíka snilldin sem að þessi sjávarréttasúpa var Allra besta sjávarréttasúpa sem að ég hef nokkrun tíma fengið - svei mér þá. Alveg brilljans mjög vel útilátið, ríkuleg af sjávarréttum og rann ljúft niður - takk fyrir mig. Mæli hiklaust með henni.

Staðurinn er með heimasíðuna www.scandinavian.is


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.