26.1.2010 | 11:16
Að vera í vinnunni!!!
Stafsmenn sérstaks saksóknara virðast vera í vinnunni. Gott að sjá að menn eru að bíta frá sér víða og kafa ofan í málin. Víst er að af nógu er að taka. Gaman verður að sjá þegar ákærur verða birtar og hvernig ganga mun að fylgja hlutunum eftir. Um 40 mál virðast en vera í gangi þannig að það er ekki hægt að segja að þarna sitja starfsmenn og horfi út í loftið. Auðvitað er þarna mikið um flókin og erfið mál því menn hafa örugglega reynt alla klækina í bókinni til þess að komast fram hjá kerfinu.
Vona að Ólafur Þór Hauksson og hans starfsmenn haldi áfram í vinnunni og skili af sér góðri vinnu sem leiði öll þessi mál til lykta. Ég aftur á moti ætla að skjótast úr vinnunni og í ræktina.
![]() |
Húsleitir í gangi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.