Hættu að telja........

...þetta erum við!!!!

Rússneski björnin komst aldrei úr hýði sínu í dag. Strákarnir sáu til þess. Ég er ekki frá því að Guðmundur þjálfari hafi lætt svefnlyfjum í kaffi andstæðinganna. Á köflum voru rússarnir eins og litlir krakkar sem ganga í svefni munurinn er sá að Rússarnir voru inni á vellinum. Ætla ekki að draga neinn sérstakan fram á sviðið í okkar liði - þetta var leikur liðsheildarinnar Wink

Til hamingju strákar og þið sem að þessu standið. Þið haldið áfram að gleðja okkur er heima sitjum.  Við gónum á þetta á netinu eða á skjánum, hlustum í útvarpinu og gefum frá okkur óhljóð með reglulegu millibili. Að þessu sinni voru hljóðin óvenju hlustendavæn, ....ja allavega þau sem bárust um svæðið hérna í kringum prentsmiðjuna - takk fyrir okkur.

Frábær spilamennska hjá okkar liði og það er ég viss um að norsku olíubarónarnir verða með í buxunum á fimmtudaginn, þrátt fyrir að þeir muni nú velgja Dönum undir uggum í kvöld.

Ég var reyndar,  eins og áður, hógvær og spáði 3ja marka sigri en ég var búinn að éta þá spá strax eftir 10 mínútur - megi það gerast sem oftast.

Áfram Ísland ...alltaf allsstaðar

 


mbl.is Átta marka sigur á Rússum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: ThoR-E

Glæsilegur sigur.

Ég er síðan mjög bjartsýnn á að við náum hagstæðum úrslitum gegn Norðmönnum.

Besti árangur þeirra síðustu ár er 6. sæti á EM í Noregi. Og þar áður 8.sæti á HM í Túnis, sem er allt í lagi en ekkert neinn rosa góður árangur.

Þannig að ... við tökum frændur okkar norðmenn og þá stöndum við uppi með 8 stig og pottþéttir í 2.sæti í milliriðli.

Lítur vel út!

og ég er sammála .. rússarnir gáfust upp eftir að staðan varð 9:2 .. þeir áttu aldrei möguleika og þeir virðast hafa vitað það.

ThoR-E, 26.1.2010 kl. 16:51

2 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Já maður er orðinn óþægilega spenntur yfir þessu öllu saman. Búinn að skipuleggja allan minn tíma eftir mat á fimmtudaginn nú þear til að reyna að halda ró minni!!!

Hlakka til að sjá leikinn á eftir

Gísli Foster Hjartarson, 26.1.2010 kl. 16:53

3 identicon

Það var ekkert að marka þetta ... Rússarnir voru búnir áður en leikurinn byrjaði og vilja komast heim sem fyrst. Þeir eiga eftir að steinliggja á móti Austurríki.

Vona bara að okkar menn hafi ekki ofmetnast við að mæta svona lélegu liði ... kemur í ljós á fimmtudag ... þá mun sko reyna á.

Grefillinn Sjálfur - Koma svo! (IP-tala skráð) 27.1.2010 kl. 00:52

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband