Taugatitringur á Anfield

Það væri nú alveg eftir Everton að mæta í te á Anfield í dag og hirða stigin 3. Það borgar sig að hamra járnið á meðan það er heitt og Liverpool járnið hefur verið nokkuð vel barið síðustu misseri. Það er ljóst að hvorugt liðið vill tapa í þessum leik, rétt eins og öllum öðrum leikjum. Bæði lið búin að spila marga deildarleiki í röð án þess að tapa, Everton gengið vonum framar,  en hvort bæði lið verða áfram á því skriði eftir leikinn í dag er allsendis óvíst.

Ég reikna með hörkuleik og jafntefli 1-1 þar sem að Liverpool jafnar þegar fer að líða að lokum leiksins og bæði lið verða því áfram ósigruð í deildinni, allavega í nokkra daga í viðbót. Best að skella sér út í Týsheimili að tippa áður en fjörið skellur á því eftir því sem nær dregur verða fleiri og fleiri taugatrekktari þarna úti í heimili. - Set hérna inn 3 myndskeið misskemmtileg eftir því hvern þú spyrð. - Njótið dagsins sparkfíklar

 

 


mbl.is Everton vann síðast á Anfield fyrir 11 árum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.