23.4.2010 | 15:16
Að gera í buxurnar!
Þetta er kjaftsögg fyrir blessaðann Árna Mat. Hann varð þarna að hákarlafóðri DO og félaga og þarf að gyrða sig í brók til að öðlast mannorð sitt til baka.
Þjóðin lá ekki á liði sínu að gagnrýna þessa ráðningu á sínum tíma, en að henni var hlegið og vegið. Nú hlaupa menn um með buxurnar á hælunum og vita hvorki hvort þeir eru að koma eða fara.
Nú bíður maður eftir að heyra ummæli Hannesar Hólmsteins um þennan dóm. Því þessi mæti drengur sem fékk stöðuna er sonur hins mikla herra sem HHG sér vart sólina fyrir!!
![]() |
Árni og ríkið bótaskyld |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.