26.4.2010 | 21:04
Heitt helv.....
Magnaður leikur. Má segja að Keflvíkingar hafi "klárað" þetta í öðrum leikhluta, eftir að Snæfell hafði nú byrjað leikinn betur. Snæfellingar voru að klúðra of mikið af dauða færum - ef svo má að orði komast. - Taugarnar voru þandar til hins ýtrasta eins og svo oft áður þegar úrslitarimmur eiga sér stað. Sjaldan séð eins mikið af blóði í einum körfubotlaleik eins og í kvöld - ótrúlegt blóðbað!!!´Stemningin var frábær þarna í kvöld íbúar Stykkishólms og þeir er fylgdu Keflvíkingum eiga heiður skilin fyrir að skapa svona andrúmsloft. Já og ég vil þakka fyrir lýsinguna á Stöð2 Sport Arnar félagi Björnsson góður en Svali Björgvins finnst mér alveg frábær í að lýsa þessum leikjum.
Það held ég að mágur minn og dóttir hans hafi hoppað í loft upp í fjáhúsinu í kvöld þegar þeirra lið vann.
Ekki varð mér að ósk minni í kvöld en kannski að það gerist á fimmtudaginn - hver veit - Áfram Snæfell
Keflavík knúði fram oddaleik gegn Snæfelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þetta er það sem ég er búinn að vera að benda á, Keflavík hefur verið í þessum sporum og náð að stíga úr þeim og landa sigri, eins og á móti ÍR hér um árið þegar þeir lentu 2-0 undir og unnu að lokum 3-2.
Gísli Sigurðsson, 26.4.2010 kl. 21:16
Nafni þetta gæti orðið rosalegur leikur í Keflavík á fimmtudaginn. En svo hins vegar gæti þetta orðið algjört spennufall hjá öðru hvoru liðinu og ekkert gengið upp!!!! Fannst mínir menn engan veginn hitta á skotfjölina í kvöld - til hamingju með þína menn.
Gísli Foster Hjartarson, 26.4.2010 kl. 21:28
Nei hver andssssssk..töpuðu okkar menn...Já var þetta blóðugur leikur...Var bara að koma heim úr vinnu:(...Vonum það besta á Fimmtudag:)
Halldór Jóhannsson, 26.4.2010 kl. 21:29
Jáb sagan segir að Keflavík hefur þetta á fimmtudaginn, við skrifuðum bókina um hvernig á að koma til baka í svona viðureignum, Snæfell eru að brotna enn aftur og núna er tíminn fyrir okkur keflvíkinga að sína þeim hvernig á að spila körfubolta.
Áfram KEFLAVÍK!
Kef (IP-tala skráð) 26.4.2010 kl. 21:34
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.