20.6.2010 | 09:04
Fengsæll borgarstjóri ...eða leikari?
Hvort heldur er á atkvæði eða lax greinilega. Rétt eins og í kosningaundirbúningi þá koma ekki allir til manns sem að maður talar við en árangurinn góður hjá borgarstjóranum í Reykjavík.
Sé að í greininni segja menn að fjöldi fólks hafi mætt til að sjá leikarann opna ána - ég hélt að hann væri þarna sem borgarstjórinn? Var þá ekki alveg eins hægt að segja að fjölda manns hafa drifið að til að sjá fjölskylduföðurinn veiða í soðið því marga munna þarf að metta?
Borgarstjóri veiddi lax | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Auðvitað er hann sem Borgarstjóri að opna árnar.
það er hrein móðgun að kalla hann leikara þarna.
typical klúður a la MBL
Birgir Guðjónsson (IP-tala skráð) 20.6.2010 kl. 09:18
þarna erum við sammála kæri Birgir
Gísli Foster Hjartarson, 20.6.2010 kl. 10:00
Gæti ekki verið meira samála....klúður hjá fréttaritara, góð ábending :)
Jóhanna Ómarsdóttir, 20.6.2010 kl. 13:08
Ekki klúður, gert viljandi. Grefur undan honum og það er akkurat það sem Morgunblaðið er búið að vera að gera sýnt og hulið síðustu mánuði.
:)
Unnar Geirdal (IP-tala skráð) 20.6.2010 kl. 17:47
Ég tók einmitt eftir þessu líka og ég er sammála þér Unnar, þetta er pottþétt gert viljandi. Skulum nú ekki gleyma því hver situr í hásætinu þarna hjá Morgunblaðinu. ;)
Jón Flón (IP-tala skráð) 20.6.2010 kl. 18:01
Ef viljandi gert þeim mun aumkunarverðara. Moggin fer stöðugt neðar og neðar er oft á tíðum kominn hættulega nálægt soranum.
Gísli Foster Hjartarson, 20.6.2010 kl. 19:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.