24.8.2010 | 19:14
Sóley hittir naglann....
...á höfuðið.
Auðvitað er ekki hægt að skella bara allri óráðsíunni á almenning. Hvernig væri að þetta lið sem þarna hefur farið svo óvarlega með stöðu fyrirtækisins, sem raun ber vitni í boði borgarstjórnarflokka síðustu ára taki þennan skell að nokkru leyti á sig!!!!!! Óraunhæft veit ég vel. EN þetta lið sem þarna var í forsvari bæði í nefndum og ráðum og á launaskrá fyrirtækisins gæti kannski byrjað á að biðja fólk afsökunar á ruglinu sem þarna átti sér stað!!! Það er kannski ágætis byrjun?
Gjaldskrárhækkun ekki lokasvar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Til viðbótar mætti leigja út eða selja þetta stóra og flotta hús sem hýsir Orkuveitur Reykjavíkur. Eitthvað hefur nú þetta kostað og eitthvað kostar að reka slíka höll. Fara í t.d. minna og ódýrari húsnæði.
Lára (IP-tala skráð) 24.8.2010 kl. 19:44
sammála ykkur hér að ofan - illa hefur verið farið með almannfé af þeim sem þarna hafa strjórnað á pólitískum nótum
Jón Snæbjörnsson, 24.8.2010 kl. 20:05
Koma ekki eitt eða tvö nöfn fyrst upp í huga manns? Alfreð Þorsteinsson og Guðlaugur Þór kannski, mér finnst þessi nöfn ríma vel við óráðssíuna sem viðgekkst í OR. En auðvitað voru þeir ekki einráðir en samt mjög miklir valdamenn í Orkuveitunni á sínum tíma.
Gísli Sigurðsson, 24.8.2010 kl. 20:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.