Ekki sitja heima!

stjornlagathing_1044349Ágætu Landsmenn

Þann 27. nóvember n.k. , á laugardaginn, verða haldnar einstæðar kosningar í sögu lýðveldisins. Þá verður kosið til stjórnlagaþings. Eitthvað sem ekki hefur verið gert áður. Kjósa á fólk til þess að takast á við það verkefni að fara yfir stjórnarskrá lýðveldisins. Mikið  og krefjandi verkefni.

Við hljótum öll að vilja taka þátt í að velja það fólk sem okkur líst best á til að takast á við þetta mikilvæga verkefni. Það er því afar mikilvægt að þú kjósandi góður látir ekki þitt eftir liggja og mætir því á kjörstað og tjáir hug þinn. Þetta eru persónukosningar og því öðruvísi kosningarfyrirkomulag en fólk hefur áður kynnst hér á landi, þess vegna er gott að::

  • Undirbúa sig heima og velja sér frambjóðendur af vefnum eða eftir prentaða bæklingnum sem dreift var í hús. Skrifið svo ykkar frambjóðendur á æfingakjörseðilinn sem þið fenguð einnig sendan heim.
  • Raðið eins mörgum frambjóðendum og þið frekast treystið ykkur til, eða treystið, frá 1 til 25,  en munið eftir því að skipa þeim í forgangsröð; hún skiptir meginmáli.
Ég leita eftir stuðningi ykkar . Skoðaðu hvað ég hef fram að færa. Ég treysti á að þú látir ekki þitt eftir liggja.

 - Ekki klikka á að kjósa.

Gilli Hjartar - 3612


mbl.is Um 5.500 kosið utan kjörfundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ef það eru kosningar, þar sem yfirvaldið gefur út kynjakvóta,ráðstafar svo restinni af atkvæðum eftir geðþótta og lítur á heila klappið sem ráðgefandi án timamarka þá skil ég ekki orðið kosningar.

Guðmundur Ingi Kristinsson (IP-tala skráð) 25.11.2010 kl. 01:39

2 identicon

VARIST FASISTA OG ELÍTISTA Á STJÓRNLAGAÞINGI.

Núverandi stjórnarskrá tryggir að þjóðin fái ALLTAF að kjósa, í ÞREMUR tilfellum:1. Ef forseti neitar að staðfesta lög2. EF STENDUR TIL AÐ BREYTA ÞJÓÐKIRKJUNNI3. Ef alþingi vill láta reka forsetan.Séu lög um þjóðkirkju numin í burtu, er um leið verið að nema brott lög um að þjóðin fái að velja sjálf sinn eigin sið. Það er vanvirðing við íslensku þjóðina, lýðræðishefðina og Vestræna Menningu í heild sinni.Það var einmitt lítil grein um þetta nýlega í Bókatíðinudum 2010 í tilefni af nýrri útgáfu núverandi stjórnarskrárinnar sem til sölu eru í bókabúðum. Ráðlegg öllum að fá sér eintak. Það á enginn erindi að kjósa um breytingar á stjórnarskrá sem hann hefur ekki nennt að lesa og kynna sér, og ég vara alla við að láta hræðsluáróður frá ólýðræðislegum besserwisserum hafa áhrif á val sitt. Sjálfur er  ég aðskilnaðarsinni, en umfram allt lýðræðissinni, sem virði ekki þá sem bjóða sig fram til að troða einkasannfæringu sinni upp á almenning og vanvirða lýðræðið og þjóðina.   

Jónas (IP-tala skráð) 25.11.2010 kl. 22:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband