14.12.2010 | 08:37
Hvað með gamla siði!
Er ekki hægt að útkljá þetta bara með því að fara í sjómann eða hryggspennu? já eða reipitog. Klára þetta bara í eitt skipti fyrir öll!!!! ....þetta er samt orðið einhvern veginn þannig á mbl.is að ef að menn eru ekki 100% sammála um mál í öðrum flokkum en Sjálfstæðisflokknum þá eru þetta alltaf mikil átök og þaðan af verra. Mikið hlýtur að vera leiðinlegt að vera í sjálfstæðisflokknum ef að menn takast ekki á um mál þar. Ætli menn á mbl.is hafi aldrei heyrt um að þar sem er alltaf logn þar er dauði?
Mikil átök hjá VG | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég myndi kjósa gott klofningsframboð út frá VG, sérstaklega ef á listanum væru nöfn eins og Lilja Mósesdóttir og ef til vill Ögmundur (þó maður sé nú aðeins byrjaður að missa trúnna á hann). VG kýs ég aftur á móti aldrei meir. Ef ég hefði ætlað mér að kjósa dyramottu fyrir stærri flokk, þá hafði Framsókn til langstíma sama orðspor og VG. Í dag eru þessir flokkar nákvæmlega eins, nema Framsókn er aðeins að taka sig á meðan VG sekkur dýpra og dýpra í þrælslund gagnvart Samfylkingunni.
Ex-VG (IP-tala skráð) 14.12.2010 kl. 09:20
Skoðanakönnun: Er rétt að draga Streingrím J. Sigfússon fyrir Landsdóm, sem höfuðábyrgðarmanns “Svavars-samningsins”?
Takið þátt og farið á hlekkinn:
-
http://gthg.blog.is/blog/gthg/-
Með kveðju, Björn bóndi
Sigurbjörn Friðriksson, 14.12.2010 kl. 10:19
Óttalegur barnaskapur er þetta.
Mosi
Guðjón Sigþór Jensson, 14.12.2010 kl. 10:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.