4.1.2011 | 12:36
Fáránlegt rok!!!
Sérstakur vindurinn hér í Eyjum í dag. Aldrei þessu vant. Þegar ég rölti til vinnu í morgun þá var saltkassinn við Fjólugötuna opinn, hafði greinilega fokið upp, enda svo sem bara um aumt plast lok að ræða. Frá kirkjunni og niður að Tvist þá mætti maður maður nokkrum ruslapokum sem greinilega hafði leiðst þófið og drifið sig af stað, en voru þó alls ekki vissir hvert þeir voru að fara. Núna situr maður inni í hlýjunni en heyrir vindinn berja prentsmiðjuna að utan alveg hægri vinstri. Það verður gaman að rölta á leið heim seinni partinn með vindinn í bakið!
Hvassar vindhviður og sandfok | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
:):)...Og gekk heimferðin vel?????
Halldór Jóhannsson, 4.1.2011 kl. 19:29
Já Halldór hún gekk vel....húkkaði mér far
Gísli Foster Hjartarson, 4.1.2011 kl. 22:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.