13.3.2011 | 19:58
Á einhver strætó?....
Mætti fyrir framan skjáinn þokkalega glaður í bragði og nokkuð viss að við myndum ýta við þeim þýsku. Svo varð nú aldeilis ekki raunin. Upprúllun frá fyrsta flauti og til þess síðasta.
Menn eiga að skammast sín. Það er hægt að sætta sig við tap en að sjá heilt lið jarðað lifandi er svakalegt.
Það eru tveir leikir eftir og lítið annað að gera en að vinna þá. Annars eru EM og draumur um Ólympíuleikana úti.
Þegar ég sá að RÚV tók þetta í gegnum Eurosport setti ég á Eurosport og horfði á þetta þar, lengstum. Hló mikið þegar þulurinn á ensku sagði að vörn Íslands hefði verið svo opin að það hefði mátt keyra þar í gegn á strætó!!!!!!!
![]() |
Ellefu marka skellur í Halle |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Heyrðu við eigum enn strætóinn eftir að við hættum akstrinum fyrir 15 mán síðan:)
Þetta var svakalegt að horfa á ísl...en það má líka segja það að það var svakalegt að horfa á Þjóðverjanna um daginn,með þeirra slæma tap...
Halldór Jóhannsson, 13.3.2011 kl. 21:03
já þetta er fáránelga mikill munur á milli tveggja leikja hjá sömu liðum. EN þú mátt prófa að keyra strætóinn á milli varnarmannanna.
Gísli Foster Hjartarson, 13.3.2011 kl. 22:21
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.