21.4.2011 | 09:44
Bíddu nú við karlinn minn!
Ég sem hélt að Hemmi væri á leiðinni til ÍBV!!! Ég er kannski ári of snemma á ferðinni með þær væntingar? Þá verður maður bara að bíða rólegur. Svo sem í góðu lagi ef að hann tekur 1 ár í viðbót þarna hjá Portsmouth, 2 leikir gegn Brighton næsta vetur og kannski þá komin ástæða til að kíkja á leik aftur með karlinum. Svo er þetta líka spurning ef ekki semst hjá Portsmouth að ganga bara til liðs við Brighton og enda þetta þar!!!! Fyrsti leikurinn sem atvinnumaður hjá Palace á sínum tíma var einmitt æfingaleikur við Brighton ef að ég man rétt.
„Ég er til í eitt ár í viðbót“ | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hvað er eitt/tvö ár á milli vina..:):):)
Halldór Jóhannsson, 21.4.2011 kl. 09:57
Dropi í hafið!
Gísli Foster Hjartarson, 21.4.2011 kl. 10:09
Maðurinn er algjör nagli!
Elvar Másson (IP-tala skráð) 22.4.2011 kl. 11:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.