Vissu þetta ekki allir?

Ég hef sagt það síðustu daga að það kæmi mér ekki á óvart að höfnin opnaði núna í vikunni. Ástæðan! jú ég er að fara upp á land. Ekki oft sem að það gerist en það stendur til um helgina að kíkja á stóru Eyjuna í norðri og því er þetta kærkomið. Síðast þegar ég þurfti á fastalandið, í nóvember þá var einmitt opið í höfnina líka.  Þannig að kannski á fólk bara að fylgjast með því hvenær ég er á ferðinni!!!!!Tounge

Það er okkur gríðarlega mikilvægt að höfnin hrökkvi í gang þó ekki væri nema næstu 5-6 mánuði. Það mun hafa mikil áhrif hér í bæ og það gæti farið svo að hér myndaðist líka hagkerfi fyrir ofan Strandveg, ef svo má að orði komast, það er að segja umhverfi sem kemur til með að ganga óháð því hvort mikil veiði er á sjónum eða ekki - það gæti mörgum átt eftir að þykja skrýtið - til að byrja með. Við skulum vona það besta.


mbl.is Herjólfur til Landeyjahafnar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Auðvitað vonum við það besta ekki annað hægt þegar svona klúður er annarsvegar!

Sigurður Haraldsson, 3.5.2011 kl. 22:29

2 identicon

Blessaður Gilli

Auðvita hlaut eitthvað gott að vita á ferð þína til Norðureyjar, spurning að fá þig til að fara oftar þannig að höfnin haldist opinn áfram góða ferð og góða heimkomu

Kv.Dollý

Sólveig Adólfsdóttir (IP-tala skráð) 3.5.2011 kl. 22:50

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.