17.6.2011 | 08:11
Mafíuvinnubrögðin....
....tengjast sem sagt ekki bara FIFA. Alveg eru svona vinnubrögð með ólíkindum. Ef að hitt er í reglunum þá er með ólíkindum að þátttöku þjóðirnar allar nema kannski Þýskaland skuli ekki mótmæla svona, ja og meira að segja Þýskaland líka því þeir gætu átt eftir að lenda í þessu.
![]() |
Rýr svör og gamall sóðaskapur hjá EHF |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Nema þetta sé bara aulaskapur hjá HSÍ að hafa ekki kynnt sér reglurnar um riðladráttinn? Sem er kannski sennilegra í þessu tilfelli...
Jonni, 17.6.2011 kl. 13:52
Já það væri nú að bíta hattinn af skömminni Jonni. Góður punktur, það hlýtur einhver góðviljaður blaðamaður að kynna sér þetta ofan í kjölinn. Það er að segja ef einhver metnaður er í blaðamannastéttinni.
Gísli Foster Hjartarson, 17.6.2011 kl. 21:06
helsti vandi heims handboltans í dag er dómgæslan. dómarar frá austur evrópu eru hvað eftir annað gómaðir / grunaðir um múturþægni. en svo komum við líka niður á veikleika handboltans....en hann er sá að dómgæsla er tilfinningarmál hvers dómara fyrir sig, en ekki einhver lagabókstafur....t.d. hvernær á að gefa 2 min. eða gult spjald.....leiktöf.....maður lentur í teignum og svo væri hægt að telja lengi og lengi.
því miður geta dómarar haft úrslitavaldið í jöfnum leikjum þar sem handboltin er svo hröð íþrótt. en alltaf sjáum við dómara frá austur evrópu á evrópumótum og heimsmeistaramótum dæma einhverja þvælu hvað eftir annað.
þetta mundi ég kalla sóðaskap innan EHF.
el-Toro, 20.6.2011 kl. 00:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.