Frábært

Það er frábært að þetta ferli undir dyggri stjórn Stefáns Hauks aðalsamningamanni þjóðarinnar, og einum virtasta samningamanni Evrópu, sé að fara af stað eftir þessum stíg. Þetta táknar að það styttist í annan endann á þessu ferli og þjóðin getur farið að fá íhendurnar eitthvað til að greiða atkvæði um.
mbl.is Viðræður um aðild að ESB að hefjast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

http://www.telegraph.co.uk/finance/economics/8599634/George-Soros-says-it-is-probably-inevitable-a-country-will-leave-euro.html

anna (IP-tala skráð) 26.6.2011 kl. 21:44

2 identicon

verði þér að góðu að éta e h ógeðslegan kjúkling frá evrópu , úr e h pínu litlu búri, alin á ógeðis fæðu og slátraður í vél --> you are what you eat <-- !!!

tel vera fleiri galla en kosti við þessar viðræður , þjóðin er búinn að seiga NEI og afhverju er þá verið að sækja um ?!?

stefán jónsson (IP-tala skráð) 26.6.2011 kl. 22:10

3 Smámynd: Óskar

Stefán Jónsson hvenær sagði þjóðin nei?  ÉG hef alveg misst af þessum kosningum um Evrópusambandið.

Óskar, 27.6.2011 kl. 00:56

4 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Spyr nú sömu spurningar Óskar hvenær sagði þjóðin Nei? Hvaða væll er þetta með kjúklingana? Ganga þeir sjálfala á Íslandi og lifa á lúxusfæði. Hvernig hafa þessir dönsku kjúklingar sem hér hafa verið til sölu í gegnum tíðina verið meðhöndlaðir? Er þeim slátrað á sérstakan hátt fyrir Ísland.

 Svo er óneitanlega mjög sérstakt að sjá alla þessa taugaveiklun útaf þessum viðræðum. Hér gengur þjóð sjálfala sem endalaust telur sig vera ögn, ef ekki meira, betri en aðrar þjóðir og ber sér á brjóst við það,  en um leið og það á að ræða eitthvað svona þá tekur við ein allsherjar hræðsla um að vakna upp við að vera í nýju fötum keisarans.

Gísli Foster Hjartarson, 27.6.2011 kl. 07:54

5 identicon

er einhver að fylgjast með fréttum ... breta íhuga að yfirgefa esb .. andstaða við esb vex í örðu hverju ríki ..evran er að deyja ... og svo framvegis ...  bara svona smá punktar til að skoða ..

Esb mun að mínu mati sennilega lifa eitthvað áfram en flest ríki virðast vera að sjá að þegar allt fer til fjandans hjá einu ríki þá verða hin að borga brúsan ... það eru menn bara hreinlega ekki tilbúnir til að gera .

þjóðverjar íhuga að taka upp markið aftur og ef það gerist veikir það evruna ef það hreinlega drepur hana ekki .. 

ég held við ættum að gefa ESB pásu með þeim skilaboðum að þeir séu hreinlega of valtir þessa dagana til þess að við viljum vera með ..

ég myndi í það minnsta ekki sjá það sem neinn hagnað að stökkva úr skítsæmilegum björgunar bát yfir í sökkvandi skemmtiferðaskip... báturinn mun þó fljóta áfram  annað en skipið sem mun enda á hafsbotni.

Hjörleifur Harðarson (IP-tala skráð) 27.6.2011 kl. 09:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.