11.7.2011 | 20:01
Hægan, hægan
Það er aldeilis að það á ða spýta í lófana við þetta verk. Ég sem þarf að fara austur og var farinn að sjá að ég þyrfti að fara norður leiðina til baka - flýg austur, keyri til baka. Mér sýnist menn ætla að redda þessu fyrir þann tíma, sem er annar mánudagur. Þá verður straujað að austan og beint í Landeyjahöfn. Ég sem gældi við að taka nótt í hjólhýsinu í Fnjóskadalnum. Stutt stopp á Akureyri á mánudagsmorgninum. Svo straujað í Landeyjahöfn!
Best að fara ekki á taugum yfir þessum pælingum núna - þetta kemur allt í ljós.
EN fagna því að menn ætla að vera snöggir þarna við Múlakvísl, það ætti að létta áhyggjunum af fólki á suð-austurlandi
Brú tilbúin fyrr en áætlað var | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hún á að skammast sín þessi Vegagerð að eyðileggja fyrir þér góða áætlun að fara norður fyrir. Hún má ekkert gott sjá þessi Vegagerð, án þess að reyna að rústa því.
Svo stjórnar ríkisstjórnin þessu öllu á bak við tjöldin án vafa og svo ESB á bak við þarnæstu næstu tjöld.
Ógeð!
Axel Jóhann Hallgrímsson, 11.7.2011 kl. 20:18
Já eins og þetta sé ekki nóg heldur er nú ríkisstjórnin farin að skipta sér að blessuðu veðrinu - blíða dag eftir dag - það gengur ekki - við þurfum nýja ríkisstjórn!!!!
Gísli Foster Hjartarson, 11.7.2011 kl. 21:53
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.