17.2.2012 | 13:53
Næsti gjörðu svo vel!!!
Baldur er nú pottþétt ekki sá eini sem hægt er að saka um innherjasvik í þessu samfélagi það er nóg að horfa á strúktúrinn í banka- og embættismannakerfinu, já og víðar til að sjá að svo sé. Er ánægður með að dómurinn féll á þennan veg sá í raun ekki hvernig hann hefði átt að geta fallið á annan veg. Nú er bara spurning hvort hann fer með þetta fyrir mannréttindadómstól Evrópu, og menn bera við einhverjum formsgalla - klúður í þá átt gæti verið svolítið Íslenskt!!!
Dómur yfir Baldri staðfestur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Menn gætu hafa reynt að klúðra einhverju til þess að láta hann sleppa.
Jakobína Ingunn Ólafsdóttir, 17.2.2012 kl. 14:44
FME lét málið niður falla á sínum tíma
Það þarf að rannsaka þann gjörning.
Sleggjan og Hvellurinn, 17.2.2012 kl. 14:50
Maður er nú bara hræddur um að röðin sé tæmd, það sé enginn "næstur" í röðinni. En af nógu er að taka, allt embættismannakerfið eins og það leggur sig. Þeir hafa farið um ljúgandi, svíkjandi og prettandi, bæði land og þjóð.
Dexter Morgan, 17.2.2012 kl. 15:10
Bjarni Ben til dæmis!
Sigurður Haraldsson, 18.2.2012 kl. 00:28
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.