6.6.2012 | 20:08
Óeirðarlögreglan!!
Stefnir í hina skemmtilegustu samkomu á Austurvelli á morgun - verst að komast ekki. Ætli sersveitin verði ekki á svæðínu líka?
Það er líka til fólk sem er ekki sammála tillögum ríkisstjórnarinnar en er samt alveg til í að sjá breytingu á kerfinu en ekki þessar sem þarna ræðir um.
Lengi hefur mér fundist að allur fiskur eigi að fara á markað - en það eru ekki allir sammála því.
Í framhaldi af því hefur mér fundist að allur fiskur eigi að fara á markað innanlands og þeir útlendingar sem ágirnast fiksinn geta bara boðið í hann í gegnum tölvu eða verið með sína eigin umboðsmenn sem versla inn fyrir þá - en það eru ekki allir sammála því.
En ég er alveg viss um að ef fólk sest niður og ræðir málin þá má landa þeim svo framarlega sem allir koma heiðarlega fram.
Reikna með beinni útsendingu frá þessu fjöri!!!!
Segja kvótakerfið ekki einkamál útgerðarmanna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Sæll.
Menn gleyma því alltaf að útgerðin skilar fé til landsmanna (arði) og opinbera geirans jafnvel þótt ekkert veiðigjald væri lagt á.
Sjómönnum eru greidd laun og af þeim launum greiða þeir skatta til ríkis og sveitarfélaga. Þeir kaupa líka hitt og þetta sem greiða þarf virðisaukaskatt af.
Útgerðin greiðir líka skatta af sínum tekjum. Útgerðin kaupir viðhald og þjónustu í landi og á þeim viðskiptum er virðisaukaskattur (alltof hár auðvitað) og þeir aðilar sem vinna viðkomandi störf greiða skatta til ríkis og sveitarfélaga. Útgerðin kaupir olíu og þar hirðir ríkið líka vænan skerf. Fólk vinnur auðvitað við að selja útgerðinni olíu. Útgerðin er með fólk í vinnu hjá sér sem vinnur að markaðsmálum fyrir söluvöru útgerðarinnar, það fólk fær greidd laun og það borgar ef þeim launum skatta og skyldur til stjórnmálamanna sem skilja ekkert hvernig er að reka fyrirtæki.
Halda þarf skipum við og kaupa veiðarfæri sem skapar störf og aftur hirðir hið opinbera vænan skerf af þeim peningum sem þar skipta um hendur í formi virðisaukaskatts, tekjuskatts, útsvars og tryggingagjalds. Eru engin takmörk fyrir því hve mikið af peningum einkaaðila ríkið má einfaldlega gera upptæka?
Af hverju vita stjórnmálamenn betur hvað á að gera við þessa fjármuni en einkaaðilar? Af hverju mega þeir ekki halda meiru eftir en þeir gera í dag og það er þá hægt að nýta í að skapa störf eða fjárfestingar? Af hverju eiga skussar eins og Steingrímur, Jóhanna og Oddný að ákveða fyrir fólk í hvað peningar þess fara? Sagan sýnir auðvitað að stjórnmálamenn vita miklu síður en einkaaðilar í hvað þessir fjármunir eigi að fara.
Hvers vegna þarf að leggja enn frekari álögur á útgerðina eða bara fyrirtæki í landinu yfir höfuð? Það er beint samband milli skattlagningar og opinberra afskipta annars vegar og atvinnuleysis hins vegar, sagan geymir ótal dæmi þess.
Hvers vegna þarf að umbylta kerfi sem er afar hagkvæmt? Tal stjórnmálamanna um að greinin þurfi að greiða arð til þjóðarinnar er bara fyrirsláttur eins og sést eftir að ofansagt hefur verið lesið.
Svona della viðgengst auðvitað vegna vanþekkingar kjósenda á efnahagsmálum, vanþekkingar sem kemur í veg fyrir að lífskjör almennings í landinu batni. Ef kjósendur væru vel að sér í efnahagsmálum myndu þeir einfaldlega hlæja menn sem koma fram með svona hugmyndir út af sviðinu.
Margir fjölmiðlar láta eins og hagnaður sé alveg hræðilegur hlutur en enn verri ef hagnaðurinn er hjá útvegsmönnum. Ég held að þessir aðilar ættu að reyna fyrir sér í fyrirtækjarekstri fyrst þeir eru svona vel að sér!
Þeir sem standa fyrir þessum aðgerðum samhliða aðgerðum sjávarútvegsins vilja, þó þeir viti það ekki:
1) Fækkun starfa í sjávarútvegi
2) Aukna óhagræðingu í sjávarútvegi
3) Minnka verulega útflutningsverðmæti sjávarafurða og þar með rýra lífskjör Íslendinga
4) Aukningu atvinnuleysis úti á landi
5) Auka völd stjórnmálamanna og þar með spillingu - besta leiðin gegn spillingu er auðvitað að taka völd af stjórnmálamönnum.
Fleira mætti tína til en þetta er alveg nóg. Fáfræði sumra er alveg grátleg. Svona rugl ætti að vera glæpsamlegt
Helgi (IP-tala skráð) 7.6.2012 kl. 07:03
Helgi minn þú hefur farið á flug þarna og er það vel.
Gísli Foster Hjartarson, 7.6.2012 kl. 08:32
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.