17.7.2012 | 21:47
.Helv.... súlurnar!!!
Þá er bara eftir að finna til tjaldsúlurnar niðri í bílskúr. Þá er maður klár í stuðið!!! Það þarf nú ekki að koma neinum á óvart að dagskráin sé fjölbreytt þó alltaf sé hún með svipuðu sniði. Reyndar fleiri útlendingar á listanum yfir skemmtikrafta í ár en oft áður. Verður forvitnilegt að sjá hvernig það kemur út. Hápunktar hátíðarinnar, brennan, flugeldasýningin og blysin á sunnudagskvöldinu (með flugeldaívafi) allt er þetta á sinum stað. Maður þarf í raun bara að muna eftir góða skapinu og þá eru manni flestir vegir færir.
![]() |
Fjölbreytt dagskrá á Þjóðhátíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Það verður allt á sínum stað nema Tóti í Geisla sem geislaði af gleði yfir því að Jói Ragg fór að slá blettinn hjá Vitta Helga. Vitti fór að helga sig ostagerð og lærði mikið af Magga á Felli sem er þekktur fyrir sína smelli í Dalnum. Jónas á Múla fer stundum í Dalinn, ekki sárhvalinn nema síður sé en þá sýður uppúr sundlauginni hjá Vigga og þá er gott að þekkja Bigga í Tvistinum sem á nóg af þristinum. Rúllugardínur eru uppseldar í Eyjabúð og hún er búin að loka, setja í poka því Friðfinnur er farinn að moka. Andskotans rækjusalat er þetta sagði Gilli Hjartar þegar Þorsteinn Hallgríms makaði á sig sólblómaolíu og klæddi sig í ananas. Jæja pulsa.
Jón Óskar (IP-tala skráð) 18.7.2012 kl. 10:22
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.