15.9.2012 | 18:46
...það er ég hræddur um
Góður sigur og aldrei í hættu eins og ég sagði fyrr í vikunni. Nú er bara að ná þeim úrslitum sem til þarf í Noregi - ég sagði að MLV myndi skora sigurmarkið þar, og stend við það. En það er líka gott að liðið getur skilað þessu með hana á bekknum. Hún er meidd og þá verða aðrar að stíga upp - það er merki um góða spilara, svo einfalt er það. ég er í raun hissa á þjálfaranum að vera að setja hana inná. Það var engin þörf á því og svolítið áhættusamt að taka sénsinn á þessu. Hefði gefið henni algjöra hvíld og hleypt henni inn gegn þeim Norsku. Þá hefðum við fengið að sjá norskar hríslur bærast í logni ....en flott hjá ykkur stelpur - til hamingju.
Ísland í toppsætið á ný | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Þær voru stórkostlegar
Jón Sveinsson, 15.9.2012 kl. 22:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.