16.1.2013 | 07:48
Á að taka þetta upp hér á landi?
Sinn er siður í hverju landi var einhvern tíma sagt ef minnið er ekki að svíkja mig, eins stjórnvöld eru að gera!!! Skemmtilega hugmynd alveg hreint þessi pæling um buxnalausadaginn. Eina sem ég sé að þessari frétt að ég hefði haldið að það hefði verið þúsundir sem tóku þátt í buxnalausadeginum en ekki hundruð. Mexíkóborg er sennilega einhver stærsta borg í heimi og miðað við þessar myndir þá hef ég trú á að fleiri en nokkur hundruð hafi tekið þátt - ja nema að þetta hafi bara átt við eina litla lestarstöð í litlu úthverfi!!!!
Mætti alveg spá í að taka þetta upp hér á landi - að sumarlagi þá - og sjá hvaða viðbrögð menn fá. Það hljóta að vera einhverjir þarna úti sem eru til í að skipuleggja þetta!!!
![]() |
Allir buxnalausir í lestunum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.