3.2.2014 | 20:11
...hlýtur að vera skýr lína!!!
Liggur það ekki í augum uppi að Illugi ætlast til þess að sami verði um sömu launahækkanir hjá kennurum í framhaldsskólum og lagt var í dóm fyrir þrælana hjá ASÍ. Allt annað getur ekki talist í lagi. Það gengur ekki að staðið sé á bremsunni á hinum almenna markaði og svo fari menn en og aftur á flug hjá hinu opinbera, því það er jú að miklu leyti hinn almenni markaður sem borgar laun ríkisstarfsmanna. En gleymum samt ekki að þær svívirðiegu launahækkanir sem útvaldir fengu síðasta haust frá kjaradómi, eða hvað þetta nú heitir, eru ekki til að auðvelda samningsstöðu ríkisins. Það er náttúrulega skrautlegt að sjá t.d. seðlabankastjóra tala um að ekki megi rugga bátnum og því megi ekki hækka laun umfram 3% eða álíka þegar hann svo sjálfur fékk launahækkun upp á annan tug prósenta og það afturvirkt ef minnið er ekki að svíkja mig.
Maður spyr sig: Getur þetta endað vel?
Skapi svigrúm til launahækkana | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.