22.4.2007 | 23:25
Góður sigur í fyrsta leik
Frábær körfubolti sem þarna var boðið upp á. Mínir menn í Phoenix seinir í gang en þegar að menn hrukku í gír var þetta ekki spurning. Nú er bara að ná að halda dampi. Frábært að horfa á þesa snillinga sem þarna eru, mér fannst reyndar koma í ljós í seinni hlutia leiks að þetta er hóp en ekki einstaklingsíþrótt því um leið og hinn frábæri leikmaður Kobe Bryant fann ekki fjölina sína lengur þá hrundi leikur LA Lakers eins og lítil spilaborg, því aðrir leikmenn liðsins voru ekki líklegir til stórræðanna.
Nú er bara að vona að Suns haldi haus og komist í úrslitaleik vesturdeildar og þar mætum við vonandi uppáhaldsliði Þorsteins Hallgríms, Dallas Mavericks, og tökum þá í nefið og tökum svo úrslitaleikinn með stæl - það yrði ágætis sárabót fyrst að Snæfell hirti ekki Íslandsmeistaratitilinn.
Ég er ekki frá því að þetta lið Phoenix Suns í dag sé betra heldur en þegar við vorum með Kevin Johnson (alltaf mitt uppáhald), Dan Majerle, Danny Ainge, Mark West, Richard Dumas, Tom Chambers, troðslumeistarinn Cedric Ceballos og svo að sjálfsögðu sir Charles Barkley en þessir voru í liðinu sem háði frábært einvígi við Chicago Bulls um titilinn 1993, ef ég man ártalið rétt.
Athugasemdir
Ég horfði á Phoenix leikinn í gær og það er svakalegt að sjá hvað Lakers er mikið eins manns lið, þegar Koby hætti að hitta í fjórða leikhluta þá var ekkert að frétta. Phoenix vinnur þetta einvígi 4-1. Mínir menn í Dallas voru undir allan seinni hálfleikinn í nótt en hef trú á að við vinnum einnig 4-1.
kveðja úr mosó
Þorsteinn Hallgrimsson (IP-tala skráð) 23.4.2007 kl. 11:07
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.