Skyldi hann verða eins liðs maður

Skyldi það fara svo að Steven Gerrard verður leikmaður sem að mun leika bara með einu liði á ferlinum, þ.e.a.s. fyrir utan landsliðið. Það yrði nú aldeilis saga til næsta bæjar því það er nánast að verða eins og að finna hundraðkrónu seðil að rekast á leikmann sem er búin að vera jafnlengi hjá sama liði í Englandi og Gerrard. Reyndar eru nokkrir en hjá United sem aðeins hafa verið hjá einu liði, en svona leikmönnum fer ört fækkandi þó enn nái þeir því ekki að vera sjaldgæfari en Pálmatré á strönd á Íslandi.

5 ára samningur upp á 15 milljónir á viku, þá tekur það hann sennilega átta viku að vera jafn dýr rekstri knattspyrnudeildar FH á ársgrundvelli!


mbl.is Nýr fimm ára samningur hjá Gerrard í burðarliðnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband