26.5.2007 | 07:24
I love it
Alltaf sama sagan þarna......Það er eins og við manninn mælt. Upp rennur föstudagur á dagatalinu og þá er eins og fólk eigi sér ekki viðreisnarvon og það ríkur á harðaspretti út fyrir borgarmörkin til þess að losna úr erli og stressi borgar ótta og myrkurs og ná að hlaða batteríin til þess að takast á við næstu viku í þessum asa sem þarna er orðinn.
Eftir afslappaða helgi fjarri glaumi borgarinnar leggur fólk aftur í hann, heim á leið, og eyðir heimleiðinni, í langri bílaröð, í að íhuga hvort ekki sé hægt að komast aftur út úr borginni um næstu helgi. Borgarlíf: I love it!
![]() |
Talsverð umferð frá höfuðborginni, en gengur vel |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já, og er það ekki bara fínt?
Palli (IP-tala skráð) 26.5.2007 kl. 08:59
Af hverju flytur þetta fólk ekki bara útá land.Það er þá alltaf í sveitasælunni.
Ragna (IP-tala skráð) 26.5.2007 kl. 11:01
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.