29.8.2007 | 08:48
Frikki verður í ham -
- vona ég
Hef enga trú á öðru en Eyjapeyjinn Friðrik Stefánsson verði í ham eftir dapran dag í Finnlandi um síðustu helgi, dvaldi greinilega of lengi í saunaklefanum fyrir leik eins og flestir aðrir í liðinu. Liðið virkaði mjög dapurt í Finnlandi og virtist aldrei komast upp úr startblokkunum en ég vona svo sannarlega að raunin verði önnur á móti Georgíumönnum. Ekki bretta menn upp ermar í körfuboltanum so ég segi upp með sokkana strákar, er viss um að Georgíumenn fara hjá sér ef að liðið mætir með sokkana vel uppi - Áfram Ísland
![]() |
Mæta besta miðherja í Evrópu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.