Bíðið nú við

þetta er nú að verða mjög sérstakt svo ekki sé meira sagt. Blóð úr stelpunni  í bíl sem þau leigðu 3 vikum seinna!  Ég sem hélt að eþtta lið hefði verið vaktað af fjölmiðlamönnum og lögreglu nánanst allan sólarhringinn í einar 5-6 vikur eftir slysið - var ekki kastljósið endalaust á þessu fólki - hvernig má þetta þá vera?

Maður fer nú að spyrja sig hvað er eiginlega í gangi í þessu máli. - Það verður eitthvað þegar að niðurstaðan úr þessu öllu kemur. -


mbl.is Lögregla segir blóð úr Madeleine hafa fundist í fjölskyldubílnum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sammála.  Ég hef fylgst mjög náið með þessu máli og get bara ekki séð, miðað við það sem ég hef lesið, að þau hafi komið nálægt hvarfi hennar.  Eitthvað sýnist mér staðreyndir líka á reiki, því skv. erlendum miðlum er hún 'named a formal suspect or arguida' til að hægt sé að spyrja hana 22 spurninga og skv. Portúgölskum lögum verður að 'setja' hana sem grunaða.

Hrefna (IP-tala skráð) 7.9.2007 kl. 12:40

2 identicon

Þetta er farið að snúast um viðskipti. Portúgalar eru búnir að fá nóg, vilja losna við þau og þessar sífeldu óþægilegu fréttir af þeim úr landinu. Algarve er ferðamannastaður fyrir fjölskyldufólk og því eru endalausar fréttir af hinu sorgmæddu foreldrum sem sakna dóttur sinnar ekki góðar fyrir viðskiptin. Portúgölsku blöðun hafa undanfarnar vikur verið að gefa hitt og þetta í skyn og nú hefur portúgalska lögreglan látið undan þrýstingi.  

Ingibjörg (IP-tala skráð) 7.9.2007 kl. 12:55

3 identicon

Sammála.  Ég hef fylgst mjög náið með þessu máli og get bara ekki séð, miðað við það sem ég hef lesið, að þau hafi komið nálægt hvarfi hennar.  Eitthvað sýnist mér staðreyndir líka á reiki, því skv. erlendum miðlum er hún 'named a formal suspect or arguida' til að hægt sé að spyrja hana 22 spurninga og skv. Portúgölskum lögum verður að 'setja' hana sem grunaða.

Hrefna (IP-tala skráð) 7.9.2007 kl. 13:04

4 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Maður veit ekki hvað skal halda sífellt nýjar upplýsingar að berast og allt einu einu berast öll bönd að móðurinni - kannski að þetta sé rétt að menn vilji nú útkljá málið til að kaupa sér frið - þetta mál hefur verið óþægilegt bæði fyrir portúgali og ekki síst portugölsku (gölnu)lögregluna.

Gísli Foster Hjartarson, 7.9.2007 kl. 13:50

5 identicon

Ég held að ef annað þeirra hefur gert þetta þá væru þau farin frá Portúgal og heim til Englands. Eftir hveju ættu þau að vera að bíða ef þau eru sek.

Guðný (IP-tala skráð) 7.9.2007 kl. 16:42

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.