Blaðasnápar og veður

Ég hélt að blaðamenn hefuðu sagt að þeir hefðu margítrekað við KSÍ þetta mál um vinnuaðstöðu þeirra og þetta var aðstaðan sem að þeir fengu, eftir að sagt var, var það ekki, að tillit yrði tekið til þeirra (blaðamanna)???  Hvað gerist nú?

Þarna segir: Þegar hafa verið gerðar ráðstafanir til þess að úr aðstöðu verði bætt eftir kostum fyrir leik Íslands og Norður Írlands síðar í dag. KSÍ og SÍ munu taka upp viðræður í framhaldinu um aðstöðu íþróttafréttamanna.

Er ekki þarna verið að segja að okkur að nánast ekkert hafi veri hlustað á samtök íþróttafréttamanna í upphafi ef að taka á upp viðræður núna í framhaldinu????? Ég bara spyr.

Hvet blaðamenn til að lesa leyfishandbók KSÍ og það  sem þar er sett fram um vinnuaðstöðu blaðamanna sem og annarra fjölmiðlamanna.


mbl.is Yfirlýsing frá KSÍ og SÍ
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég held að hvergi annarsstaðar í heiminum væri komið fram með sama offorsi útaf svona hlutum sem aðstaða blaðamanna er.  Þeir hafa aðstöðuna að blása þetta upp og þyrla upp ryki svo það er eiginlega stórfyndið.  Svo birta menn yfirlýsingu eins og það hafi tekist þjóðarsátt um stórt hagsmunamál þjóðarinnar.  Come on !!

Jón Óskar Þórhallsson (IP-tala skráð) 12.9.2007 kl. 16:38

2 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

he he - kannski er þessu best líst þarna hjá þér

Gísli Foster Hjartarson, 12.9.2007 kl. 16:39

3 Smámynd: Jón Ingi Cæsarsson

Ég held að það sé lausn á þessu máli hvað varðar landsleikina.

Fréttamennirnir þurfa ekkert endilega að vera á vellinum. Þeir geta alveg talað um Eið Smára og landsliðsfyrirliðann heima í stofu og þurf ekkert á völlinn. Þeir hafa hvort sem er lítinn áhuga á leiknum og hinum leikmönnunum. Td töluðu fréttamenn sjónvarps endalaust um landsliðsfyrirliðann Eið meðan inni á vellinum barðist alvöruleiðtoginn Hermann Hreiðarsson landliðsfyrirliði. Eiður er frægur og það dugar honum til að halda athygli þessara manna óskiptri og það geta þeir dundað við heima á blaði eða útvarpi ef þeim er kalt

Jón Ingi Cæsarsson, 13.9.2007 kl. 08:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband