23.2.2008 | 20:36
Er þá ekki rétt að gera samskonar ....
...könnun meðal karlmanna. Held að í ljósi þessara hugsana sem ég er alls ekki frá því að séu það sem á sér stað væri gaman að sjá hvernig karlmenn munu svara í svona könnun,er ansi hræddur um að það verði ekki mikið öðruvísi niðurstaða þar. En það ætti þá að benda til þess væntanlega eru í fjölmörgum samböndum báðir aðilar hundóánægðir með kynlífið á heimilinu en koma sér ekki að efninu og því er hjakkað í sama farinu. Samt ekki alveg viss með þetta 14 mínútna dæmi hefði haldið að þetta væri nær 8 mínútum en þarna kemur fram !!!!
Blautir draumar í vinnunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Ég heyrði einhverstaðar að það sé í sekúndum talið sem kallar hugsi um kynlíf
Loki (IP-tala skráð) 24.2.2008 kl. 03:57
he he he - jÁ kannski nær að spyrja karlmenn um hversu oft þeir gera það helfur en hversu oft þeir hugsa um það......en það er svo sem líka hægt að telja 14 mín. í sek. ef út í það er farið 840 sek nákvæmlega, en þú átt væntanlega við örfáum sekúndum
Gísli Foster Hjartarson, 24.2.2008 kl. 14:17
Veit um einn ágætismann sem var sífellt að segja brandara um kynlíf.Samstarfsfólki var nóg boðið einn daginn og ein konan sagði:Þetta er að verða óþolandi.Þú ert sí og æ talandi um kynlíf.Ég er viss um að þú gætir heimfært traktor uppá kynlíf.Já Já sagði maðurinn.DRÁTTARVÉL
Ragna (IP-tala skráð) 24.2.2008 kl. 20:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.