20.3.2008 | 08:44
Alvöru markmaður og fleira athyglisvert
hefði nú varið þessa spyrnu í gær. En þetta er skemmtileg tækni sem hann er að koma sér upp þarna.
......En ég bíð nú í raun spenntari eftir því hvað gerist þegar hræringar byrja á leikmanna markaði framtíðarinnar er ansi hræddur um að menn eins og Ronaldo muni reyna að notfæra sér glufuna með leikmannasamninga sem Andy Webster notfærði sér þegar hann yfirgaf Hearts með eitt ár eftir af samningi sínum og komst upp með það og Hearts fékk bara lítilræði af þeim bótum sem að þeir vildu fá. Þeir vildu fá 4,6 milljónir punda, FIFA sagði að þeir skyldu fá 625.000 en Webster og Hearts áfrýjuðu málinu, báðir aðilar ósáttir, og lokadómur féll í málinu frá einhverjum "íþróttavinnumáladómstól" (Court of Arbitration for Sport) þess efnis að aðeins skyldu greidd 150.000 pund í bætur og þar við situr.
Ronaldo getur reyndar ekki nýtt sér þetta gegn United fyrr en 2010 en aðrir leikmenn gætu reynt þetta í sumar, hjá hinum ýmsu liðum.
Þarna segir að ef að leikmaður sem er orðinn 28 ára þegar samningur er gerður þá hefur félagið bara rétt á að fara fram á kaupverð á fyrstu 2 árum samnings,en fyrstu þremur ef hann er yngri en 28 ára þegar samningur er gerður, þannig að þessi langi samningur sem að talað er um að Fabregas t.s geri við Arsenal heldur aðeins fyrstu þrjú árin, eftir það getur hann farið og félagið ekkert gert, en félagið sem að hanngengur til liðs við þarf að borga sem nemur föstum launum hans það sem eftir er af samnngstímanum.
Athyglisverður dómur og að mörgu leyti mikilvægari en Bosman dómurinn á sínum tíma.
![]() |
Botna ekkert í aukaspyrnum Ronaldos |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.