Lélegur árangur...

...hjá Barcelona í deildinni í vetur. Ókei þeir eru í öðru sæti en það er himin og haf á milli þeirra og Real Madríd - algjörlega óásættanlegt. Vissulega hafa menn meistaradeildina til að bjarga andlitinu, svona eins og Valencia bjargaði andlitinu fyrir þetta tímabil að vissu leyti með því að vinna bikarinn, en ég sé þá bara ekkert ná að klára Manchestur United. Manchester er á fínu skriði þessa dagana og virðast oftast nær geta stigið upp um gír þegar á þarf að halda, Barcelóna hefur aftur á móti ekki verið að gera það og því spái ég að þetta verði dollulaust vor hjá Barca, þó svo að mér myndi ekkert leiðast ef að þeir myndu ýta United til hliðar.
mbl.is Eiður lék fyrri hálfleikinn í jafnteflisleik Barcelona
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband