Mér fannst þessi ummæli nú heimskuleg

Orð Sepp Blatter dæma sig sjálf - fáránleg og ég er ekki hissa þó að margir hafi í kjölfarið lagt til hans með exi, ef svo má að orði komast,  og sagt honum að segja af sér. Mikið af ummælum hafa fallið um þetta allt frá leikmönnum til stjórnarmanna sambanda sem og framkvæmdastjóra ensku leikmannasamtakanna, Gordon Banks og Pele t.d. Allir eru hissa á þessum ummælum. Hvað ætli menn segi yfir þessu hér á landi - hér hafa menn þagað þunnu hljóði, auðvitað er ekki íslenskur bolti á þessum stalli sem við ræðum um þarna en menn mega hafa skoðun á hlutunum fyrir því, nei sorry menn eiga að hafa skoðun á hlutunum. Legg til að menn leiti viðbragða við þessu þó nokkuð sé um liðið.
mbl.is Ferguson: Óheppilegt hjá Blatter
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.