...og þettta sem var allt svo vel rekið???

Já nú verða sultarólar þjóðarinnar, fyrir utan þeirra er mest hafa tekið, hertar til hins ýtrasta. Verður gaman að sjá hvaða tillögur verða lagðar fram og hvar verður helst skorið niður! Hljótum að skera mest niður í utanríkissþjónustunni, spurning um að leggja hana af því við eigum ekki orðið neina vini úti í heimi sem vilja fá okkur í heimsókn.
mbl.is Yfir 100 milljarða halli á fjárlögum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vissulega var það vel rekið -  spurningar til þín - ef þú ert með vel rekið heimili - í vel byggðu húsi -allt gengur vel - en síðan koma óprúttnir einstaklingar og rústa húsinu hjá þér.  Var húsið þá illa byggt?  Var heimlisreksturinn í húsinu slæmur?

Það var jú þitt að passa uppá eigur þínar ekki satt?

Dylgjan í fyrirsögninni þinni er þér ekki sæmandi -

Ólafur I Hrólfsson (IP-tala skráð) 26.11.2008 kl. 13:54

2 Smámynd: Smári Jökull Jónsson

En var þetta allt svo vel rekið Ólafur ? Varð það virkilega þannig að það var einungis þessum óprúttnu einstaklingum, sem þú minnist á, að kenna ?

Ég held það séu aðeins fleiri þættir sem koma þar að, m.a. ákvaraðnir núverandi og fyrrverandi ríkisstjórnar...

Smári Jökull Jónsson, 26.11.2008 kl. 14:22

3 Smámynd: Gísli Foster Hjartarson

Dylgjur og ekki dylgjur Ólfur. Mér er sagt að þetta hafi verið ágætlega rekið hjá okkur, er það ekki rétt? En það er slæmt þegar þeir sem eiga að sjá til þess að eþtta sé vel rekið gleyma sér við að njóta ímyndað árangurs og gleyma að sinna vinnunni. Þarna tel ég nefnilega að lagst hafi á eitt óprúttnir náungar og svo aðrir sem að héldu að þeir væru með allt undir dyggri stjórn en gleymdu að skoða hvað gekk á og voru þvíteknir íbólinu. Þú hleypit ekki bara börnunum inn í stofu að leika sér sér og fylgist ekki með þeim er það? En það gerðu Árni Matt, Björgvin G og félagar og því er ástandið í stofunni nú verra en nokkurn óraði fyrir.

Gísli Foster Hjartarson, 26.11.2008 kl. 20:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.