22.1.2009 | 19:29
Ótrúleg flóra fólks....
...sem virðist orðið taka þátt í mótmælunum - þegar maður fylgist með svona úr fjarlægð þá skynjar maður ekki alveg flóruna sem að þarna kemur greinilega saman. Það er orðið svo greinilegt að það kraumar óánægju í öllum stéttum, öllum flokkum, öllum starfsgreinum og það liggur við að maður geti sagt í öllum bekkjardeildum.
Takk til ykkar sem leggið þetta á ykkur - vona að leiðindaliðið sem var með stæla í nótt verði heima.
Syngja mótmæli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
ER EKKI LJÓST ORÐIÐ að vandamál í sambandi við mótmæli er : dómsmálaráðherra og lögreglustjóri ?
Ögra mótmælendum og senda fólk sitt í framlínu bara :AF ÞVÍ ! ! !
Þetta er takmörkum háð , hvað hægt er að ÖGRA mikið BARA AF ÞV Í !!!
ÉG var þáttakandi í þöglum mótmælum ,vegna barnabarna minna .
Þau eiga að komast af ,annars þurfa þau að flýja land , eins og ég heyri .
Það er komið að uppgjöri .
Kristín (IP-tala skráð) 22.1.2009 kl. 20:30
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.