Er seint betra en.....

...aldrei?

Velti því fyrir mér hvort það er ekki of seint fyrir Liverpool að byrja kannski núna að setja saman góða sigur seríu, sama á við um Chelsea reyndar, hefur ekki þetta hikst Liverpool gegn lakari liðunum slegið allar vonir um að Englandsmeistaratitillinn komi á Anfield úr höndum liðsins? Mér sýnist sem að Man. Utd. sé búið að koma sér þægilega fyrir við stýrið og leikmenn þess búnir að spenna beltin og ekkert á þeim buxunum að losa þau í bráð. Það er svo athyglisvert með United að þó að liðið sé ekkert að spila vel þá er vörnin þétt og með þessa sóknarmenn sem að þeir hafa þá virðist alltaf einhver þeirra detta inn á réttumtíma þó ekki sé í nema 30 sek á 90 mínútum og ná að setja'ann og þannig hafa þeir klárað marga leiki á meðan önnur lið rekur í strand þegr þessi staða kemur upp. Með Liverpool virðist það nú bara vera þannig að þegar Gerrard er frá að þá vantar einhvern extra kraft í liðið, vantar annan svona leiðtga í liðið. - kannski að mönnum takist að finna slíkan í sumar, er hræddur um að menn verði bara að sætti sig við orðinn hlut á þessu tímabili varðandi deildina - en kannski hef ég rangt fyrir mér. 


mbl.is Liverpool sigraði Sunderland
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ægir Óskar Hallgrímsson

Sammála með Júnætid, þeir eru með þetta í sínum höndum, það er bara fyrir Liverpool og Chelsea að vinna sína leiki og sjá svo til hvað gerist.

Ægir Óskar Hallgrímsson, 3.3.2009 kl. 22:27

2 Smámynd: Jón Á Grétarsson

Sammála Bukollabaular að því leiti með hvaða mann vantar ...

Jón Á Grétarsson, 3.3.2009 kl. 23:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband