10.4.2009 | 18:37
Vissi Kjartan þetta semsagt?
Er ég að skilja það rétt að maðurinn sem ekkert vissi í gær og í fyrradag visi þetta allan tímann? Eða er karlgreyið búinn að vera sveittur við það að reyna að komast til botns í málinu til að líta ekki illa út sjálfur - Athyglisvert er að Andriframkvæmdastjóri segir af sér en virðist engan þátthafa átt í þessum málum.
Gaman verður að sjá þegar þeir gefa sig fram sem sóttust eftir styrkjunum stóru, eða er kannski verið að leita að einhverjum til að taka á sig sökina ???
Upplýsir ekki hverjir leituðu styrkja | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Menn væru öruglega reknir sem gjaldkerar og framkvæmdastjórar ef þeir vissu ekkert um 55 milljóna færslur í bókhaldinu?????
fjolnir (IP-tala skráð) 10.4.2009 kl. 18:53
Takið eftir hvernig kallinn hann Kjartan talar, " ég hafði ekki milligöngu um þetta mútufé" svo er hann spurður vissir þú af þessu múturfé? nei sagði hann. Og svo kemur hann í kvöldfréttum og segist hafa kynnt sér málið og hann og hann viti alltsaman.
Auðvitað vissi hann allt saman frá upphafi, ótrúlegur karakter.
Sigurdur (IP-tala skráð) 10.4.2009 kl. 19:05
Eru allir í stuði????Kv
Halldór Jóhannsson, 10.4.2009 kl. 19:43
Er fólk blint þessi maður sat sem formaður í bankastjórn LANDSBANKANS! á sama tíma og var líka framkvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins á SAMA tíma! hann vissi um þetta allt og stóð pottþétt að þessu á þeim tíma!
Sjálfstæðisflokkurinn og peningaöflin sem hafa drifið hann áfram eiga ekki að fá að þrífast í íslensku þjóðfélagi . Þetta er hreint út sagt ógeðfellt allt í kringum þennan flokk ekkert annað en áróðursherferðir og heilaþvottur sem fá þennan flokk kosin.
valdi (IP-tala skráð) 10.4.2009 kl. 21:20
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.