21.4.2009 | 19:41
Hreint ótrúlegt....en kemur eitthvað orðið á óvart
Ótrúlegt að alltaf þegar eithvað gruggugt kemur orðið í umræðuna þá kemur nafn Guðlaugs Þórs í umræðuna og svo er þarna Illugi Gunnarsson - tveir efstu menn í haldsins í Reykjavík í dag - ekki reyna að segja mér að svona styrkir haf ekki áhrif, sama hver á hut að máli.
Ekki er ég svo hissa á að sjá Björn Inga Hrafnsson nefndan, lengi haft, einhver ónot útaf honum. Já og Steinnunn Valdís, fyrrym borgarstýra.
Maður er alveg hissa á því að ekkert sé að gerast varðandi hin og þessi mál og afhverju allir hlutir fóru svona hægt af stað síðasta haust, menn hræddust greinilega útekt á sjálfum sér - en andskotinn hafi það það hlýtur að fara að koma að því uppgjöri.
Við erum alltaf að koma að sömu hlutunum í umræðunni - hversu spillt er þetta lið? - þessir flokkar? hversu spillt er íslenskt embættismannakerfi, já og íslenskt banka- og viðskiptalíf? - það besta í þessu er að allir segja svo að þeir séu saklausir uns sekt er sönnuð, má ver, en engum dettur í hug að víkja á meðan þeir gera hreint fyrir sínum dyrum.
Í flestum löndum í heiminum, nema kannski hjá þjóðum eins og Simbabve væri þetta lið búið að segja af sér, ja eða búið að þvinga það í að segja af sér.......... en þess gerist greinilega ekki þörf hér,endasvona hlutir greinilega orðnir partur af norminu!!!!
Háir styrkir frá Baugi og FL | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.