25.4.2009 | 07:39
Það verður einnig Litla flugan..
......hún flögrar um og
Fólkið brást, stefnan ekki!
Það er barið að dyrum. Þegar opnað er stendur í gættinni maður sem spyr hvort hann megi trufla mig augnablik. Það er sjálfsagt. Maðurinn kemur vel fyrir. Hann segist vera að safna fé til stuðnings við bágstödd börn í þriðja heiminum sem þjáist af hungri. Hugmyndin er ekki eingöngu að veita þeim fæði, heldur einnig klæði og menntun sem myndi styðja þau til sjálfbjargar. Ég var svo snortinn af hugmyndafræðinni og gæsku mannsins að ég hugsaði mig ekki tvisvar um þegar hann bað mig um fimmþúsundkall til þessa ágæta málefnis. Mér leið prýðilega þegar ég lagðist á koddann, góði maðurinn hafði sannfært mig um það að fimmþúsundkallinn sem dugar ekki fyrir mánaðaráskrift af Íslenskri sjónvarpsstöð, myndi metta mörg börn í marga mánuði. Ég svaf vel.
Það voru mér því mikil vonbrigði þegar ég komst að því nokkrum dögum síðar að úlfur hafð leynst undir sauðagærunni. Góði maðurinn hafði farið beint á pöbbann með fimmþúsundkallinn frá mér, drukkið sig blindfullann og ælt á dyravörð.
Á landsfundi Sjálfstæðisflokksins um daginn varð Davíð Oddson fyrrverandi formaður flokksins brjálaður vegna þess að forysta flokksins hafði gert þau ömurlegu mistök að setja á fót heilmikla nefnd sem þeir kölluðu Endurreisnarnefnd Sjálfstæðisflokksins. Ekki varð Davíð hressari þegar hann las fyrirsögnina á skýrslu nefndarinnar ,,Fólkið brást, stefnan ekki”. Davíð er ekki algalinn. Í fyrsta lagi, ef eitthvað þarf að endurreisa, þá hefur eitthvað hrunið og fyrirsögnin segir að Sjálfstæðisflokkurinn hafi brugðist, því flokkurinn er fyrst og fremst fólkið. Ef Kirkjan bregst, eigum við þá að vera brjáluð út í steypuna eða kirkjuklukkuna. Ég er ekki hissa á því Davíð hafi orðið gersamlega brjálaður og dauðséð eftir trjágróðrinum sem fór í skýrsluna. Skýrslu sem gaf hans frammistöðu sem leiðtoga flokksins um langt skeið algjöra falleinkunn. Í fyrstu virtist sem landsfundarmenn hefðu áttað sig á játningunni og þessum hrottalegu mistökum og Davíð uppskar æðislegan fögnuð og lengi var klappað, líka af nefndarmönnum. Annað kom á daginn, Geir Haarde formaður flokksins steig í pontu og sagði skýrsluna frábært plagg og hætti svo eðlilega á sömu stundu í pólitík og uppskar gríðarlegan fögnuð og lengi var klappað. Það er þrælmikið klappað á þessum fundum, en ég held að það viti alltof fáir fundarmenn fyrir hverju er klappað. Ætli það hafi aldrei fæðst sú hugmynd að hafa túlk á þessum fundum.
Maðurinn sem sótti til mín fimmþúsundkallinn sýndi mér ágæta stefnu, sem hann ætlaði reyndar aldrei að fylgja. Það er ljótur leikur. Sjálfstæðisflokkurinn hefur opinberlega viðurkennt að hafa sett fram stefnu sem ekki var fylgt. Það er auðvelt að afla sér fylgis og stuðnings með fagurgala. Ég hefði ekki látið manninn hafa fimmþúsundkallinn ef hann hefði verið heiðarlegur og sagt mér að hann ætlaði að kaupa bjór fyrir hann og æla á dyravörð. Ég myndi heldur ekki láta hann hafa peninga ef hann mætti til mín í dag með nýja klippingu og yfirvaraskegg, með fögur fyrirheit um aðstoð við stríðshrjáðar ekkjur í Bosníu.
Íslendingar ganga nú til kosninga. Þjóðin þarf fyrst og fremst á heiðarlegu fólki að halda.
Páll Scheving Ingvarsson.
Töskukynslóðin
Harðjaxladeild sjálfstæðisflokksins (hér eftir nefnd töskukynslóðin) stóð fyrir frábærum gerningi nú á dögunum. Ekki ætla ég að velta honum fyrir mér heldur hugsuninni að baki hans. Hún gengur út á það að ef að flokkur töskukynslóðarinnar verður ekki við völd á næsta kjörtímabili þá verði ekki byggilegt hér á eyjunni. Töskukynslóðin hvetur Eyjabúa til að pakka saman og forða sér. Það vill svo til að undirritaður er fæddur 1961 og var því á tólfta ári 1973 þegar jarðeldar brutust hér út á eyjunni. Þá datt engum annað í hug en að standa saman og taka örlögunum og berjast. Það er vert að geta þess að þá var stjórn bæjarins í höndum jafnaðar-og vinstri manna. Uppbyggingin fór öll fram undir stjórn jafnaðar-og vinstri manna. Þessa sögu ættu eldri menn sem uppi voru á þessum árum að segja töskukynslóðinni, og reyna að stappa í þá stálinu. Það er svo síðar eftir að flokkur töskukynslóðarinnar náði völdum í landinu og einnig hér í bæ að halla fór undan fæti hjá okkur Eyjamönnum. Náttúruöflunum tókst ekki að knésetja þetta samfélag, en flokkur töskukynslóðarinnar er búinn að ganga ansi nærri okkur. Töskukynslóðin ætti frekar að spíta í lófana og taka á því, það verður enginn Jaxl á því að stunda endalaus pulsupartý.
Ég þekki vel og tengist góðu og heiðarlegu fólki sem fylgir sjálfstæðisflokknum. Hvers vegna spyr ég mig oft. Það er ekkert samasemmerki á milli heiðaleika og sjálfstæðisflokksins.
Kjósum allt annað Laugardaginn 25. apríl 2009.
Gleðilegt sumar Eyjamenn, Laugi.
![]() |
ÖSE í öllum kjördæmum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.